« júní 2008 | Aðalsíða | september 2008 »

23. júlí 2008

Er vinstristjórn á Íslandi?

Þegar örfáir mánuðir voru liðnir síðan ríkisstjórn Sjálfstæðisflokks og Samfylkingar tók til starfa spáði ég því að slíkt samstarf mundi ekki verða farsælt fyrir Íslendinga þótt vissulega væri þar um að ræða skásta kostinn af mörgum illum í samsetningu ríkisstjórnar (að mínu mati). Hægri- og miðjumenn fengu einfaldlega of fá atkvæði til að hægt væri að mynda starfhæfa borgaralega ríkisstjórn hægri- og miðjumanna, því miður.

Svo virðist sem mínir drungalegu spádómar virðast ætla að rætast og rúmlega það. Á meðan almenningi er sagt að herða sultarólina þá reisir hið opinbera tónlistarhöllina sína í Reykjavíkurhöfn á leifturhraða, heitir því að skuldsetja ríkissjóð á bólakaf til að bjarga bönkum í einkaeigu, teiknar upp niðurgrafnar götur í miðborg Reykjavíkur, sendir Ólaf Ragnar Grímsson heimshorna á milli til að taka í höndina á kommúnistaleiðtogum og predika gegn aðgengi fátækra íbúa Jarðar að ódýru jarðefnaeldsneyti, neitar enn að stoppa í götin á ríkissjóði þar sem fé fossar út í illa rekið heilbrigðis- og landbúnaðarkerfi, sýnir fjárfestingum útlendinga á Íslandi andúð með því að tala gegn því að þeir fáu orku til fjárfestinga sinna, fjölgar undanþágum í hinu opinbera kerfi t.d. þannig að bara fyrstu kaupendur húsnæðis en ekki allir geti sloppið undan stimpilgjöldunum illræmdu, og fleira mætti týna til sem bendir á bruðl og óráðsíu og aukin ríkisafskipti vaxi ásmeginn á Íslandi.

Í stuttu máli; allt sem gæti kallast skref í frjálsræðisátt hafa verið tekin til hálfs ef þau hafa yfirleitt verið tekin, á meðan ríkið belgir sig út hvar sem það getur.

Sjálfsstæðisflokkurinn virðist vera orðinn að píkuþræl Ingibjargar Sólrúnar, samviska flokksins er þögnuð, fyrirgreiðslupólitíkin er komin aftur, flækjustig borgaranna hefur aukist, peningamagn í umferð (verðbólga) hefur ekki aukist meira síðan seinasta vinstristjórn var við völd og ráðherrar ríkisstjórnarinnar keppa sín á milli í að lofa hærri útgjöldum úr vösum skattgreiðenda.

Er furða að frjálshyggjumenn velti því fyrir sér hvort að á Íslandi sé vinstristjórn?

Geir Ágústsson kl. 17:42