« Femínismi og umhverfisvernd: Tveir óvinir hins frjálsa fyrirkomulags | Aðalsíða | Íslenskur almenningur kann ekki hagfræði, og það sést »
3. apríl 2008
Vörubílstjórinn og húsvörðurinn - stigsmunur en ekki eðlismunur
Um þessar mundir loka íslenskir vörubílstjórar vegum til að mótmæla hækkandi eldsneytiskostnaði á Íslandi (sem á rætur að rekja til hækkandi heimsmarkaðsverðs á olíu). Margir hafa sýnt þessu framtaki samúð - jafnvel skilning - og skella skuldinni á yfirvöld fyrir mikla heimtufrekju á skatttekjur af eldsneyti.
Ekki ætla ég að andmæla því að hið íslenska ríkisvald lækki álögur sínar á eldsneyti. Slík réttlætisaðgerð má eiga sér stað fyrirvaralaust fyrir mér og gjarnan sem fyrst. Hins vegar get ég ekki tekið undir réttmæti aðgerða íslenskra vörubílstjóra þegar þeir hindra fólk í för sinni.
Afstöðu mína er sennilega auðveldast að skýra með dæmi: Gefum okkur að íbúðareigendur í fjölbýlishúsi treysti á þjónustu húsvarðar sem er mjög ósáttur við kjör sín - hann sér fram á mikil aukaútgjöld í náinni framtíð en ekki fram á að tekjur sínar eigi eftir að aukast sem þeim nemur. Húsvörðurinn ósátti bregður því á það ráð að loka á aðgang íbúðareigenda að íbúðum sínum - þeir eigi ekki að komast á áfangastað sinn fyrr en kjör húsvarðarins verða bætt!
Munu íbúðareigendur sætta sig við að fá ekki að komast leiðar sínar því húsvörðurinn er ósáttur? Mjög ósennilega. Það að meina fólki aðgangi að eigum sínum og áfangastað mun sennilega ekki falla í góðan jarðveg hjá mörgum.
Lokun vörubílstjóra á vegum er nákvæmlega sama eðlis. Munurinn á aðgerðum húsvarðarins og vörubílstjóranna er ekki eðlismunur - hann er stigsmunur. Vörubílstjórarnir loka á ferðalög mjög margra en sennilega bara frá heimili til vinnu, vinnu til heimilis eða eitthvað álíka. Húsvörðurinn meinar fólki aðgangi að eigin heimili. Í báðum tilvikum er ferðafrelsið skert. Eðli aðgerðanna er það sama. Stigsmunurinn er það eina sem skilur að.
Kæri lesandi, ef þú mundir sætta þig við að húsvörður þinn meini þér inngöngu inn á eigið heimili þá máttu mín vegna sýna aðgerðum vörubílstjóranna samúð og skilning (þó án þess að ætlast til þess að aðrir séu jafnsáttir við valdbeitinguna). Annars ekki. Það væri mótsögn sem er erfitt að kjafta sig út úr.
Geir Ágústsson kl. 18:39