« Tóbaksgjöld = lágtekjuskattur | Aðalsíða | Femínismi og umhverfisvernd: Tveir óvinir hins frjálsa fyrirkomulags »

9. mars 2008

Hamingjusömu hórurnar snúast til varnar

Í vikunni sem leið voru stofnuð samtök starfsmanna kynlífsiðnaðarins í Danmörku, Sexarbejdernes Interesseorganisation (SIO). Markmið samtakanna er að „rådgive og informere såvel beslutningstagere som sexarbejdere med det formål at opnå, at sexarbejderne kan arbejde under sikre forhold i beskyttede, sikre miljøer.“

Með öðrum orðum: Fræða og upplýsa bæði almenning og starfsmenn kynlífsiðnaðarins í því augnamiði að tryggja að starfsfólk iðnaðarins geti unnið í vernduðu og öruggu starfsumhverfi.

Hamingjusama hóran, einhver? Nei, ekki alveg (og þó). Ekki er tekin afstaða til þess hvort starfsfólk kynlífsiðnaðarins sé hamingjusamara en annað fólk eða ekki. Ekkert er fullyrt um það. Samtökin vilja bara að þeir sem það kjósa geti unnið við örugg og lögleg starfsskilyrði í kynlífsiðnaðinum. Þau benda á að starfsmenn kynlífsiðnaðarins eru sjálfir sérfræðingarnir um eigið líf, og biðja aðra vinsamlegast um að virða það (nefna þar femínistana sérstaklega).

Vitaskuld mættu samtökin mótstöðu strax á stofndegi sínum. „Þær vita ekki hvað er þeim sjálfum fyrir bestu“ er viðkvæðið. Já, þessar heimsku helvítis hórur, að þeim skuli detta í hug að velja að selja kynlíf (og um leið tímabundinn aðgang að eigin líkama) frekar en standa við búðarkassa eða þrífa klósett. Svei þeim!

Sem frjálshyggjumaður fagna ég stofnun hinna nýju samtaka. Þau minna okkur á nokkuð sem gjarnan gleymist í allri umræðu um neyslu og hegðun, sem er að einstaklingurinn á sjálfur sinn eigin líkama og á ekki að þurfa afsaka sig fyrir lögreglu og forræðishyggjufólki þegar óvinsælar og umdeildar ákvarðanir eru teknar um notkun hans!

Hórur og hórkallar í Danmörku - gangi ykkur vel í baráttu ykkar gegn lögbanni á sjálfsákvörðunarrétt ykkar!

Geir Ágústsson kl. 03:36