« Hamingjusömu hórurnar snúast til varnar | Aðalsíða | Vörubílstjórinn og húsvörðurinn - stigsmunur en ekki eðlismunur »
15. mars 2008
Femínismi og umhverfisvernd: Tveir óvinir hins frjálsa fyrirkomulags
Hið frjálsa fyrirkomulag er eitthvað sem margir taka sem sjálfsögðum hlut. Eignarréttur okkar er (að mestu) virtur og verndaður af yfirvöldum okkar, tjáningarfrelsið er (nánast) ótakmarkað, skilningur okkar á ágæti fríverslunar er þónokkur og yfirvöld hafa smátt og smátt minnkað afskipti sín af flutningum fjármagns og varnings til og frá landinu.
Hið frjálsa fyrirkomulag er samt ekki laust við alla óvini sína þótt hugmyndafræðisystkinin kommúnismi og fasismi séu að mestu komin á ruslahauga sögunnar. Sameignarsinnar og vinstrimenn finna jafnharðan upp nýjar umbúðir utan um ásetning sinn þegar almenningur byrjar að sjá í gegnum þær gömlu.
Í dag heita tvær þessara umbúða femínismi og umhverfisvernd.
Femínismi
Femínismi snérist upphaflega um að koma á lagalegu jafnrétti kvenna og karla gagnvart ríkisvaldinu. Þetta markmið náðist fyrir löngu síðan á flestum Vesturlöndum. Síðan þá hefur femínismi staðið fyrir ríkisþvingaðri launalegri jafnstöðu karla og kvenna og allskyns ríkisafskiptum af auglýsingum og ráðningum einkafyrirtækja.
Femínismi er að því er virðist óendanleg uppspretta nýrra ríkisafskipti af hinu frjálsa fyrirkomulagi. Klæðnaður barna, innihald auglýsinga, launaleynd í ráðningarsamningum einkafyrirtækja og allskyns samskipti og viðskipti er galopið fyrir ríkisafskiptum í augum femínista. Þessu þarf að berjast gegn miskunnarlaust. Femínismi eru nýjar umbúðir á gamalli hugmyndafræði - þeirri sem boðar forsjárhyggju og ríkisafskipti og vill að samfélagið sé steypt í ákveðið mót sem er ekki það sem frjáls og óþvinguð samskipti og viðskipti einstaklinga leitar í af sjálfu sér.
Umhverfisverndarhreyfingin
Umhverfisvernd hefur orðið eitt af heitu málunum seinustu ár. Hið frjálsa fyrirkomulag verndaðs eignarréttar hefur gert ríkum íbúum hins frjálsa fyrirkomulags kleift að beina kröftum sínum og athygli að einhverju öðru en brýnasta brauðstritinu. Hreint umhverfi, hreint loft, vel þrifnar götur og aðgengi að guðsgrænni og ósnortinni náttúru er krafa hins ríka íbúa hins frjálsa fyrirkomulags.
Umhverfisverndarhreyfing nútímans lætur sér þetta samt í léttu rúmi liggja. Hún vill eitthvað annað og meira en hið sjálfsagða snobb hins ríka íbúa hins frjálsa fyrirkomulags. Hún vill að ríkisvaldið þjóðnýti, snarhækki orkuverð og þvingi á óarðbæra endurnýtingu á rusli í nafni náttúrunnar sjálfrar. Náttúran í augum umhverfisverndarhreyfingarinnar hefur ekki gildi fyrir mannkynið, heldur hefur hún gildi út af fyrir sig. Maðurinn er bara aðskotadýr - sjúkdómur sem ráðskast með náttúruna og nauðgar henni (eða sleppir því) eftir eigin geðþótta.
Umhverfisverndin er að því er virðist óendanleg uppspretta nýrra ríkisafskipti af hinu frjálsa fyrirkomulagi. Orkunotkun, tegund orkuöflunar, umbúðanotkun, endurbætur í landbúnaði, flugferðalög almennings og frjáls viðskipti er galopið fyrir ríkisafskiptum í augum umhverfisverndarhreyfingarinnar. Þessu þarf að berjast gegn miskunnarlaust. Umhverfisverndin er nýjar umbúðir á gamalli hugmyndafræði - þeirri sem boðar forsjárhyggju og ríkisafskipti og vill að samfélagið sé steypt í ákveðið mót sem er ekki það sem frjáls og óþvinguð samskipti og viðskipti einstaklinga leitar í af sjálfu sér.
Femínismi og umhverfisvernd eru óvinir hins frjálsa fyrirkomulags. Þeim þarf að berjast gegn með sama eldmóði og þeim sem sigraði kommúnisma og fasisma 20. aldarinnar. Allt annað er skref í átt að dauða hins frjálsa fyrirkomulags.
Geir Ágústsson kl. 21:01