« janúar 2008 | Aðalsíða | mars 2008 »

7. febrúar 2008

Ríkið á að selja öll sín fyrirtæki, auðlindir og land í hvelli

Fyrirsögnin skal hér endurtekin: Ríkið á að selja öll sín fyrirtæki, auðlindir og land í hvelli.

Hvers vegna?

Byrjum á hinum kunnuglegu frjálshyggjurökum: Þeir sem afla verðmætanna eru betri umsjónarmenn þeirra en þeir sem krefjast þeirra í nafni skattheimtu. Þeir sem eiga lífsviðurværi sitt undir skynsamlegri nýtingu verðmæta eru líklegri til að viðhalda þeim og auka en þeir sem krefjast þeirra í nafni skattheimtu. Þeir sem eyða eigin orku, púðri, hæfileikum og tíma í verðmætasköpun eru líklegri til að standa sig betur í umsjón og nýtingu verðmætanna en þeir sem krefjast þeirra í nafni skattheimtu.

Nú að dæmisögurökunum: Allir hafa heyrt og lesið um REI-málið svokallaða. Í því eru stjórnmálamenn að deila sín á milli um hvernig á að ráðstafa milljörðum sem ríkisrekið einokunarfyrirtæki hefur aflað með sölu á lífsnauðsynlegri vöru: Orku. Á að eyða þeim verðmætum í verðskrárlækkanir eða áhættufjárfestingar? Á Sjálfstæðis- eða Samfylkingarmaður að útnefnast sem umsjónarmaður milljarðanna sem enginn getur kallað sína nema að nafni til? Á að raða stjórnmálamönnum í virðingarröð eftir því hvað þeir eru fúsir til að fjárfesta milljörðunum í útlöndum til fyrirtækja sem Íslendingum finnst vera sniðug og nútímaleg hugmynd? Á opinbert einokunarfyrirtæki á Íslandi að ráðast í fjárfestingar á frjálsum markaði erlendis eða ekki?

Öll vötn falla nú til Dýrafjarðar, var eitt sinn sagt, og í þessu tilviki er Dýrafjörðurinn einn: Hinn frjálsi markaður. REI, OR, HS, RARIK og LV á að hraða út á hinn frjálsa markað hið snarasta, og þar með koma þeim úr klóm hinna metnaðarfullu pólitíkusa sem deila sín á milli um útfærsluatriði, og passa sig á því að snerta ekki við grundvallaratriðum - þeim sem frjálshyggjurökin hér að ofan gera svo góð skil.

Einhver spurning? Nei, engin spurning.

Geir Ágústsson kl. 22:40