« Tillaga um aukin ríkisútgjöld mætir andstöðu á Alþingi! | Aðalsíða | Hægrisinnaðir stjórnmálamenn: Sýnið gott fordæmi! »

2. janúar 2008

Stundum hættulegt, oftast samt ekki = bannað

Norskir stjórnmálamenn hafa nú bætt við enn einni skrautfjöðrinni í annars vel skreyttan bannhatt sinn. Nýjasta banninu í Noregi er ætlað að koma í veg fyrir slys af völdum iðju sem margir stunda en flestir af ábyrgð og skynsemi. Á hverju ári má rekja nokkur slys til hinnar nú bönnuðu iðju, og það dugir víst til að réttlæta lögbann á hana.

Um hvað er rætt? Hvorki meira né minna en bann við sölu loftborinna flugelda til almennings í Noregi!

Einhver gæti nú velt fyrir sér hvort eitthvað svipað bann muni nokkurn tímann verða tekið upp á Íslandi. Margir telja slíkt líklega vera fásinnu. Hvað yrði þá um björgunarsveitir okkar? Yrðu þær gerðar að opinberum stofnunum? Yrðu þær neyddar til að leita annarra leiða til fjáröflunar? Enginn veit og fáir þora líklega að spá. Á meðan svo er mun bann við sölu flugelda til almennings á Íslandi sennilega seint líta dagsins ljós. Eða hvað?

Rökin fyrir hinu norska banni hljóma kunnuglega. Hinn sauðsvarti almúgi kann ekki að haga sér í návist löglegs söluvarnings og ráðið því einfalt: Gera söluvarninginn ólöglegan. Áfengi, tóbak, skotvopn, beltanotkun og fleira er allt á einhvers konar boða-og-bannlista sem var saminn með hinn heimska og sauðsvarta almúga í huga. Rök Norðmanna fyrir flugeldasölubanninu eru því ekki ný og með þau að vopni hefur ýmislegt ratað á sölulista hins svarta markaðar í gegnum tíðina.

Það eitt kemur í veg fyrir bann við flugeldasölu til almennings á Íslandi að nákvæmlega núna er tíðarandinn því óvilhollur. Hver veit hvað gerist ef hann sveigist í aðra átt, þótt ekki sé nema tímabundið? Ríkisvaldið bannar yfirleitt þar sem mótstaða er lítil. Skyldu flugeldar einhvern tímann taka dýfu í almenningsálitinu sem leiðir til banns við sölu þeirra? Banns sem seint verður afnumið nema eftir áralanga baráttu við forræðishyggjuna óþreytandi.

Vonum ekki.

Geir Ágústsson kl. 18:40