« Stundum hættulegt, oftast samt ekki = bannað | Aðalsíða | Ríkið á að selja öll sín fyrirtæki, auðlindir og land í hvelli »

30. janúar 2008

Hægrisinnaðir stjórnmálamenn: Sýnið gott fordæmi!

Um daginn var sagt frá því í fréttum að Ólafur F. Magnússon hefði ákveðið að fara ekki á ráðstefnu borgarstjóra höfuðborga Norðurlandanna sem verður haldin um mánaðarmótin í Stokkhólmi. Hann ætlaði í staðinn að einbeita sér að hinu nýja starfi sínu sem borgarstjóri Reykjavíkur.

Mitt litla hjarta gladdist við að lesa þessa frétt. Ég hélt að núna loksins væri kominn skilningur meðal stjórnmálamanna á því að allt flakk þeirra er á háan reikning skattgreiðenda, og að ráðstefnan sem um er að ræða væri tvímælalaust ekki útgjaldanna virði.

Hjarta mitt brast jafnharðan því í ljós kom að í stað eins borgarstjóra verða sendir tveir borgarfulltrúar - borgarfulltrúar frá Sjálfstæðisflokknum, hvorki meira né minna.

Hugsunin sem varð eftir í mínu höfði var einföld og í formi spurningar: Af hverju sýna þing- og sveitarstjórnarmenn Sjálfstæðisflokksins ekki orð (og flokksstefnu sína) í verki þegar kemur að aðhaldi í opinberum rekstri?

Nú er svo komið að allir íslenskir stjórnmálaflokkar eru miðju- eða vinstriflokkar. Enginn þeirra talar hátt og opinskátt um að einkavæða þetta og markaðsvæða hitt. Loðnar yfirlýsingar landsfunda, sem hvort sem er enginn les, eru ekki nægjanlegar til að hægrivæða stjórnmálaflokk. Verkin tala. Verkin hrópa! Verk Sjálfstæðismanna eru ekki til þess fallin að fá venjulegt fólk til að falla í yfirlið af hrifningu yfir því hvað þeir fara vel með opinbert fé. Því miður. Þeir hafa fengið hið tælandi bragð skattpeninga í munninn og vilja ólmir taka stóra bita af þeirri köku, rétt eins og hver annar vinstrimaður sem telur skattheimtu vera sjálfsagða réttlætisaðgerð.

Ég lýsi hér með eftir fordæmi frá þeim þing- og sveitarstjórnarmönnum sem tala í nafni takmarkaðs ríkisvalds og hóflegrar skattheimtu en eru jafnframt í lykilstöðu til að fleyta rjómann af tekjum landsmanna í eigin þágu ferðalaga og opinberra kokkteilboða (en gera það ekki).

Fæ ég slíkt fordæmi?

Geir Ágústsson kl. 20:56