« Blind trú á loftslagsvísindi er sósíalismi í dulargervi | Aðalsíða | Stundum hættulegt, oftast samt ekki = bannað »

27. nóvember 2007

Tillaga um aukin ríkisútgjöld mætir andstöðu á Alþingi!

Á Alþingi liggur nú fyrir tillaga um að „þingmenn fái sérstakan aðstoðarmann“ auk þess sem „allir formenn stjórnarandstöðuflokkanna [fái] sinn aðstoðarmann“, eða til vara að „aðeins þingmenn landsbyggðarinnar fái aðstoðarmann auk formanna stjórnarandstöðuflokkanna“ (Vísir segir frá).

Verðmiðinn, að sögn heimilda: 90-100 milljónir krónur.

Andstaða við þetta frumvarp finnst eingöngu í röðum Vinstri-grænna, sem í sjálfu sér er athyglisvert. Vinstri-grænir fá þó mikið hrós fyrir fyrir afstöðu sína í þessu máli frá þeim sem þetta skrifar, þótt vissulega megi efast um einlægni hennar. Ef stjórnarandstaðan ætti að endurskoða eitthvað í sinni aðferðafræði þá er það sú viðleitni að kjósa alltaf og samviskusamlega með ríkisútgjaldatillögum meirihlutans, en nánast án undantekninga gegn tillögum um niðurskurð á eyðslu hins opinbera á launatekjum landsmanna. Hér hafa Vinstri-grænir sýnt mikilvægt fordæmi sem er vert að taka eftir og hrósa.

Hvað sem því líður er ljóst að þingmenn hafa nóg að gera í dag, svo mikið að ákall á aðstoðarmenn hefur náð alla leið til Alþingis. Það út af fyrir sig sýnir að þingmenn hafa of mikið að gera, og ættu hið snarasta að fækka verkefnum sínum og minnka álag á sig þar með.

Þingmenn þurfa að gera eins og nemendur sem skrifa lokaverkefni við háskóla eða eru að ráða sig til starfa á hinum frjálsa markaði: Skilgreina starfssvið sitt, ákveða markmið og viðmið og sinna sínu starfi af kostgæfni samkvæmt verkefna- eða ráðningarsamningi. Sá sem breiðir of mikið úr sér og ætlast til þess að aðrir hlaupi til og ráða aðstoðarmenn og hjálpara eftir því sem fleiri og fleiri verkefni vinnast illa eiga ekki langa framtíð fyrir sér út á hinum frjálsa markaði. Þingmenn mættu gjarnan hafa það í huga.

Geir Ágústsson kl. 21:02