« Gegn lokun ríkisáfengisverslana! | Aðalsíða | Tillaga um aukin ríkisútgjöld mætir andstöðu á Alþingi! »
18. nóvember 2007
Blind trú á loftslagsvísindi er sósíalismi í dulargervi
Á undanförnum árum hefur almenningur á Vesturlöndum varla fengið annað að heyra en að athafnir mannsins séu að hafa stórkostleg og afdrifarík áhrif á lofthjúp Jarðar. Að sögn er hin mikla aukning í losun manna á CO2 út í andrúmsloftið að valda hitnun lofthjúpsins (eða kólnun), sem er slæmt, og því þarf að minnka útblástur CO2. Það er fullyrt að 90% vissa sé á þessu samhengi CO2 útblásturs og mældrar hitastigsaukningar víða á Jörðinni.
Vísindamenn hafi sagt okkur þetta og byggja ályktanir sínar á fullkomnum mælingum og líkönum sem ekki sé lengur ástæða til að vefengja hvað varðar áreiðanleika og marktækni. Eða svo er almenningi sagt af jakkafataklæddum hippum sem halda á þykkum skýrslum sem enginn fjölmiðlamaður hefur lesið eftir einnar blaðsíðu útdráttinn á blaðsíðu tvö.
Gott og vel, segir óttasleginn almenningur þá, eitthvað þarf að gera ekki satt? En hvað? Lausnin, segja jakkafataklæddu hipparnir, er sú að setja þvingandi bönd á hagkvæmustu orkugjafana og þvinga alla íbúa heims til að nýta sér eingöngu dýra og - enn sem komið er - óhagkvæma orkugjafa. Kjarnorkuver eru ekki í tísku enn sem komið er og því standa sól- og vindorka nánast ein eftir sem einu æskilegu orkugjafarnir. Hagvexti, iðnvæðingu þróunarríkja og lífskjörum Vesturlandabúa á í stuttu máli að kasta á bál vísindakirkjunnar.
Engum skal dyljast að vísinda-vædd framhlið sósíalismans er engu skárri en sú blóði drifna. Nú á ekki að drepa með vopnum og fangabúðum heldur hungri og sjúkdómum þeirra fátæku á Jörðinni sem hafa ekki efni á dýru orkugjöfunum sem eru í tísku á Vesturlöndum.
Ekki er vísindamönnum treyst til að segja fyrir um jarðskjálfta og eldgos með meira en nokkurra klukkustunda fyrirvara (yfirleitt mun minna). Margir efast um getu vísindanna til að áætla sjálfbært aflamark á fisknum í sjónum. Veðurspáin hlýtur yfirleitt vissa tortryggni og af fæstum talin marktæk meira en örfáa daga fram í tímann. Margir algengir sjúkdómar blómstra enn víða um heim þrátt fyrir að vísindamenn hafi haft þá til meðhöndlunar svo áratugum skiptir. Oftrúin á vísindin er hvergi til staðar nema þar sem dyr alheims-sósíalismans virðast ætla opnast upp á gátt. Á bál þessarar oftrúar vilja margir kasta hinni kapítalísku iðnvæðingu sem nú loksins er byrjuð að breiðast almennilega um heiminn.
Ég hafna réttmæti þeirrar aðgerðar, og hafna réttmæti þess almennt að traðka á iðnvæðingu mannkyns, sama hvað vísindamönnum tekst að reikna sig fram til.
Geir Ágústsson kl. 14:07