« október 2007 | Aðalsíða | janúar 2008 »
27. nóvember 2007
Tillaga um aukin ríkisútgjöld mætir andstöðu á Alþingi!
Á Alþingi liggur nú fyrir tillaga um að þingmenn fái sérstakan aðstoðarmann auk þess sem allir formenn stjórnarandstöðuflokkanna [fái] sinn aðstoðarmann, eða til vara að aðeins þingmenn landsbyggðarinnar fái aðstoðarmann auk formanna stjórnarandstöðuflokkanna (Vísir segir frá).
Verðmiðinn, að sögn heimilda: 90-100 milljónir krónur.
Andstaða við þetta frumvarp finnst eingöngu í röðum Vinstri-grænna, sem í sjálfu sér er athyglisvert. Vinstri-grænir fá þó mikið hrós fyrir fyrir afstöðu sína í þessu máli frá þeim sem þetta skrifar, þótt vissulega megi efast um einlægni hennar. Ef stjórnarandstaðan ætti að endurskoða eitthvað í sinni aðferðafræði þá er það sú viðleitni að kjósa alltaf og samviskusamlega með ríkisútgjaldatillögum meirihlutans, en nánast án undantekninga gegn tillögum um niðurskurð á eyðslu hins opinbera á launatekjum landsmanna. Hér hafa Vinstri-grænir sýnt mikilvægt fordæmi sem er vert að taka eftir og hrósa.
Hvað sem því líður er ljóst að þingmenn hafa nóg að gera í dag, svo mikið að ákall á aðstoðarmenn hefur náð alla leið til Alþingis. Það út af fyrir sig sýnir að þingmenn hafa of mikið að gera, og ættu hið snarasta að fækka verkefnum sínum og minnka álag á sig þar með.
Þingmenn þurfa að gera eins og nemendur sem skrifa lokaverkefni við háskóla eða eru að ráða sig til starfa á hinum frjálsa markaði: Skilgreina starfssvið sitt, ákveða markmið og viðmið og sinna sínu starfi af kostgæfni samkvæmt verkefna- eða ráðningarsamningi. Sá sem breiðir of mikið úr sér og ætlast til þess að aðrir hlaupi til og ráða aðstoðarmenn og hjálpara eftir því sem fleiri og fleiri verkefni vinnast illa eiga ekki langa framtíð fyrir sér út á hinum frjálsa markaði. Þingmenn mættu gjarnan hafa það í huga.
Geir Ágústsson kl. 21:02
18. nóvember 2007
Blind trú á loftslagsvísindi er sósíalismi í dulargervi
Á undanförnum árum hefur almenningur á Vesturlöndum varla fengið annað að heyra en að athafnir mannsins séu að hafa stórkostleg og afdrifarík áhrif á lofthjúp Jarðar. Að sögn er hin mikla aukning í losun manna á CO2 út í andrúmsloftið að valda hitnun lofthjúpsins (eða kólnun), sem er slæmt, og því þarf að minnka útblástur CO2. Það er fullyrt að 90% vissa sé á þessu samhengi CO2 útblásturs og mældrar hitastigsaukningar víða á Jörðinni.
Vísindamenn hafi sagt okkur þetta og byggja ályktanir sínar á fullkomnum mælingum og líkönum sem ekki sé lengur ástæða til að vefengja hvað varðar áreiðanleika og marktækni. Eða svo er almenningi sagt af jakkafataklæddum hippum sem halda á þykkum skýrslum sem enginn fjölmiðlamaður hefur lesið eftir einnar blaðsíðu útdráttinn á blaðsíðu tvö.
Gott og vel, segir óttasleginn almenningur þá, eitthvað þarf að gera ekki satt? En hvað? Lausnin, segja jakkafataklæddu hipparnir, er sú að setja þvingandi bönd á hagkvæmustu orkugjafana og þvinga alla íbúa heims til að nýta sér eingöngu dýra og - enn sem komið er - óhagkvæma orkugjafa. Kjarnorkuver eru ekki í tísku enn sem komið er og því standa sól- og vindorka nánast ein eftir sem einu æskilegu orkugjafarnir. Hagvexti, iðnvæðingu þróunarríkja og lífskjörum Vesturlandabúa á í stuttu máli að kasta á bál vísindakirkjunnar.
Engum skal dyljast að vísinda-vædd framhlið sósíalismans er engu skárri en sú blóði drifna. Nú á ekki að drepa með vopnum og fangabúðum heldur hungri og sjúkdómum þeirra fátæku á Jörðinni sem hafa ekki efni á dýru orkugjöfunum sem eru í tísku á Vesturlöndum.
Ekki er vísindamönnum treyst til að segja fyrir um jarðskjálfta og eldgos með meira en nokkurra klukkustunda fyrirvara (yfirleitt mun minna). Margir efast um getu vísindanna til að áætla sjálfbært aflamark á fisknum í sjónum. Veðurspáin hlýtur yfirleitt vissa tortryggni og af fæstum talin marktæk meira en örfáa daga fram í tímann. Margir algengir sjúkdómar blómstra enn víða um heim þrátt fyrir að vísindamenn hafi haft þá til meðhöndlunar svo áratugum skiptir. Oftrúin á vísindin er hvergi til staðar nema þar sem dyr alheims-sósíalismans virðast ætla opnast upp á gátt. Á bál þessarar oftrúar vilja margir kasta hinni kapítalísku iðnvæðingu sem nú loksins er byrjuð að breiðast almennilega um heiminn.
Ég hafna réttmæti þeirrar aðgerðar, og hafna réttmæti þess almennt að traðka á iðnvæðingu mannkyns, sama hvað vísindamönnum tekst að reikna sig fram til.
Geir Ágústsson kl. 14:07
13. nóvember 2007
Gegn lokun ríkisáfengisverslana!
Mynd fengin héðan.
Á sínum tíma fundust þeir á Íslandi sem héldu því fram að ríkiseinokun á mjólkursölu væri þjóðþrifamál. Hið sama má segja um sölu á kjöti.
Í dag finnst þeir enn sem verja ríkiseinokun á smásölu áfengis, þótt um sé að ræða löglegan varning sem hafsjór reglugerða skilyrðir t.d. hvað varðar neyslualdur og neyslustaði.
Er til of mikils mælst að löglegur neysluvarningur geti skipt um hendur með eðlilegum og óþvinguðum hætti án milligöngu ríkisstarfsmanna og í fjarveru lögregluþjóna?
Geir Ágústsson kl. 20:09