« Gamalt bandalag frjálshyggjumanna og sósíalista | Ađalsíđa | Gegn lokun ríkisáfengisverslana! »
27. október 2007
Eru allar skattalćkkanir jafngóđar?
Frjálshyggjumenn (ég a.m.k.) hafa mjög einfalda sýn á skattalćkkanir, sem er sú ađ allar skattalćkkanir séu af hinu góđa. Hiđ sama á viđ um niđurfellingu skatta; allar slíkar eru góđar. Í raun skiptir ekki máli hvađa skattar lćkka fyrst eđa hvađa skattar hverfa seinast ţví ţađ sem skiptir máli er skattbyrđin og ţyngd hennar, en ekki hvernig hún dreifist á t.d. seldan varning og laun.
En eru allar skattalćkkanir af hinu góđa? Um ţađ má deila. Nú eru t.d. komnar upp hugmyndir um skattaafslátt handa konum til ađ vega upp á móti hinum meinta kynbundna launamun í ríkum vestrćnum samfélögum ţar sem öllum er frjálst ađ semja um kaup sín og kjör, en skipta um starf eđa starfsvettvang séu kaup og kjör ekki ásćttanleg ađ mati launţegans.
Hugmyndir af ţessu tagi rugga bát hinnar einföldu sýnar minnar á skattalćkkanir. Ađ einu leyti er ég hrifinn af hugmyndinni ţví hún minnkar skatttekjur ríkisins og ţar međ svigrúm stjórnmálamanna til ađ láta gott af sér leiđa. Á hinn bóginn er ég móti sértćkum tilfćringum í skattkerfinu sem opna upp dyr misnotkunar og hegđunarbreytinga sem miđa ađ ţví ađ leika á kerfiđ í stađ ţess vinna vel og vera framleiđinn starfskraftur.
Er ég ţá á móti skattalćkkunum á konur? Nei, alls ekki. Ég er á móti ţví ađ konum einum sé gert kleift ađ fá skattaafslátt. Miklu nćr vćri ađ lćkka skatta á alla línuna á einu bretti og leyfa fólki sjálft ađ ráđa hlutfalli vinnutíma og tíma međ fjölskyldu, vinum og vandamönnum án ţess ađ hćtta á ađ skatturinn éti upp allt lifibrauđiđ.
Geir Ágústsson kl. 13:11