« Samkeppni er ekkert annað en samkeppnisröskun | Aðalsíða | Er mikill munur á ríkisrekstri og einkarekstri? »

5. september 2007

Um sameign, ríkiseign og séreign

Gjarnan er því haldið fram að ríkiseign sé einhvers konar sameign þeirra sem eru undir valdi ríkisvaldsins settir. Fyrirtæki eins og Landsvirkjun og Orkuveita Reykjavíkur hafa verið kallaðar sameign, samfélagsleg eign, þjóðareign og fleira í þeim dúr. Þetta er misskilningur sem þarf að leiðrétta, og það má e.t.v. gera með dæmi.

Ímyndum okkur að fyrirtæki - köllum það Baunus - gefi út að því eigi að stjórna af fólki sem vinnur kosningar sem allur almenningur má taka þátt í. Fyrirtækið er að öllu leyti í eigu eins manns - köllum hann Jón Geir - og stjórnin hefur ekkert um eignarhaldið að segja. Daglegur rekstur er þó í höndum stjórnar og framkvæmdastjórnar sem hún velur.

Er þetta fyrirtæki einhvers konar sameign eða þjóðareign í ljósi þess að allir geta kosið um æðstu stjórnendur þess? Nei, svo er ekki. Baunus er í eigu aðila sem leyfir einfaldlega slíkar kosningar, e.t.v. samkvæmt leiðbeiningum á skjali sem Jón Geir skrifaði sjálfur og endurskoðar reglulega með aðstoð hinna kjörnu stjórnar á hverjum tíma (svokölluð stjórnarskrá fyrirtækisins). Baunus getur stofnað allskyns dótturfyrirtæki og deildir sem það leyfir ekkert endilega að sé kosið til stjórnar á, t.d. Dómsvaldsdeild Baunusar og Samkeppniseftirlit Baunusar, án þess að brjóta á rétti neins.

Ríkisvaldið vinnur nokkurn veginn á sömu forsendum. Kjósendum er leyft að kjósa til Alþingis en hvorki til dómstóla né stjórnar ríkisfyrirtækja. Ríkið á sín fyrirtæki og rekur eftir eigin höfði (höfði þeirra sem mynda meirihluta Alþingis hverju sinni). Þau eru notuð til að byggja stíflur og vegi, girða af þjóðgarða og klekja út fiskseiðum, allt eftir því hvernig pólitískir vindar blása.

En hver á þá ríkið? Svarið er: Ríkið á sig sjálft - Jón Geir, eigandi Baunusar, er allt í senn allir og enginn. Allir geta kosið til stjórnar Baunusar eða sleppt því, en enginn getur afsalað sér réttinum í skiptum fyrir fé eða atkvæðisrétt í öðrum fyrirtækjum (nema með því að flytjast búferlum á markaðssvæði annars fyrirtækis sem einnig leyfir kosningu til stjórnar).

Ríkiseign er ekki sameign. Baunus er ekki sameign. Sameign er séreign hins opinbera, með eða án kosningaréttarins.

Geir Ágústsson kl. 19:15