« Sanngjörn lög og þau sem á bara að hlýða | Aðalsíða | Um sameign, ríkiseign og séreign »

28. ágúst 2007

Samkeppni er ekkert annað en samkeppnisröskun

Samkeppniseftirlitið er ríkisstofnun sem hefur það hlutverk að „stuðla að virkri samkeppni almenningi til hagsbóta“ (að eigin sögn). Undanfarið hafa starfsmenn hennar verið að vakna úr sumarleyfum og fréttirnar byrja um leið að fyllast af úrskurðum hennar og málaferlum (1, 2).

Ég gæti farið mörgum illum orðum um Samkeppniseftirlitið og meint hlutverk þess. Að þessu sinni ætla ég hins vegar að láta það eiga sig, og einbeita mér að hugtaksskrípi sem kemur fyrir aftur og aftur í fréttum af Samkeppnisstofnun: „Samkeppnisröskun.“

Það hvort Samkeppnisstofnun beitir refsingum og sektum eða ekki er oft rökstutt með því að vísa til meintrar samkeppnisröskunar (eða skort þar á). Samkeppnisröskun er hvergi skilgreind svo ég geti séð. Líklega þykir hugtakið vera það gegnsætt að á því er ekki talin þörf. Sjálfur bíð ég upp á eftirfarandi skilgreiningu:

Samkeppnisröskun er hver ein og einasta sala á þjónustu og varningi hvers eins og einasta fyrirtækis. Samkeppnisröskun er einnig falin í hverri einni og einustu breytingu á eignarhaldi, samstarfi, samvinnu og starfsemi hvers eins og einasta fyrirtækis.

Einhverjum gæti eflaust fundið skilgreining mín vera of víð, og sennilega er hún það, en við nánari umhugsun kemur í ljós að hún er ekki röng. Þegar fyrirtæki A selur varning X þá hefur ákveðinn neytandi eytt fé á einum stað sem hefði í raun verið hægt að eyða á öðrum. Eitt fyrirtæki fékk eina sölu og öll önnur fyrirtæki misstu af henni. Samkeppnisstaða fyrirtækisins sem varð fyrir vali neytandans styrktist. Staða annarra gerði það ekki (með þessari sölu).

Hvað samstarf og samvinnu fyrirtækja ræðir er markmið slíks alltaf það að styrkja samkeppnisstöðu sína og veikja samkeppnisstöðu annarra, þ.e. raska samkeppni. Fyrirtæki stunda hvorki samstarf né samvinnu nema í þeim tilgangi að bæta stöðu sína á markaðinum, og gera stöðu samkeppnisaðilanna verri.

Það að Samkeppniseftirlitið taki ákvarðanir út frá meintri röskun á samkeppni (eða skorti þar á) er í besta falli handahófskennd leið. Ef Samkeppniseftirlitið heldur í raun og veru að röskun á samkeppni sé mælanleg sem lítil, einhver, þónokkur eða mikil þá er það á villigötum. Allt sem gerist á frjálsum markaði veldur röskun á samkeppni, en neytendur einir geta ráðið því hversu mikil hún er. Þegar ríkisvaldið tekur fram fyrir hendurnar á neytendum þá er það sjálft að valda röskun á samkeppni - röskun sem neytendur fá í staðinn ekki að valda. Af þeim sökum eru frjálshyggjumenn á móti ríkisreknu svokölluðu samkeppniseftirliti.

Geir Ágústsson kl. 19:10