« Hver er vandi íslenskrar útgerðar? | Aðalsíða | Frjálshyggjumenn eru þverhausar »
11. júlí 2007
Viðtal við Ayn Rand
Árið 1959 var, af fréttamanninum Mike Wallace, tekið viðtal við heimspekinginn og rithöfundinn Ayn Rand. Viðtalið er aðgengilegt á Youtube í þremur hlutum. Ég mæli með því að sem flestir eyði hálftíma af lífi sínu og horfi á það allt. Í versta falli er það ágæt leið til að stuða sósíalískar taugar, ef einhverjar eru. Viðtalið býður einnig upp á ágætt sýnidæmi um fréttamann sem misskilur viðmælanda sinn og spyr spurninga sem endurspegla algjöra vanþekkingu á viðfangsefninu. Hagfræðiþekking blaðamanns er sömuleiðis afhjúpuð sem lítil eða engin.
Njótið!
Geir Ágústsson kl. 20:51