« Frjálshyggjumenn eru þverhausar | Aðalsíða | Sanngjörn lög og þau sem á bara að hlýða »

22. júlí 2007

Greyið aumingjans eignarrétturinn nú til dags

Á sínum tíma, þegar frjálshyggjumenn höfðu sannfært helstu leiðtoga Vesturlanda um að skrifa stjórnarskrár sem takmörkuðu svigrúm hins opinbera til afskipta af samfélaginu, þá var ríkur skilningur á því að eignarrétturinn væri ekki bara gagnlegur og nauðsynlegur, heldur líka réttlátur. Ríkisvaldið var sett inn í ramma stjórnarskráa sem fálu í sér ströng - a.m.k. strangari - skilyrði fyrir því að fá að hrófla við eignum einstaklinga.

Nú er öldin önnur. Stjórnarskrárnar líta svipað út, en í dag er búið að túlka skilyrðin fyrir eignarréttaskerðingunum svo þunnt að takmörkin eru nær engin. Reykingabann í einkahúsnæði, upptaka eigna í nafni framkvæmda og vegalagningar, skilyrtur brottflutningur fólks frá heimilum sínum í nafni almannahagsmuna (t.d. snjóflóðahættu) og svona má lengi telja - allt eru þetta ríkisafskipti af eignum einstaklinga, og alltaf eru þau réttlætt með tilvísun í almannahagsmuni, lýðheilsu, jafnrétti eða hvers sem er sem hentar tíðarandanum hverju sinni.

Vinstrimenn skynja vel þessa þróun og hafa fengið blóðbragð í munninn. Alltaf er þess krafist að lengra sé gengið. Alltaf eru þeir færri og færri sem vilja túlka ákvæði stjórnarskrár eins og þeim var (mjög líklega) ætlað að túlkast af höfundum þeirra. Orð eins og „sameign“ er jafnvel á leið inn í hina íslensku stjórnarskrá og hverfur þar með atvinnufrelsi í sjávarútvegi á Íslandi - kvótinn verður þjóðnýttur bakdyramegin. Nú má ekki opna húsnæði sitt fyrir gestum og gangandi án þess að lögleg iðja þar innandyra - reykingar - verði að lögreglumáli. Ekki má afklæðast í tilteknu húsnæði á tilteknum tíma í tiltekinni nálægð frá öðrum án þess að víkingasveitin sé sett í viðbragðsstöðu.

Veit einhver hvernig þessi þróun endar? Endar hún nokkurn tímann ef henni er leyft að halda áfram? Í dag má reykja á eigin heimili. Hvenær verður það að lögreglumáli? Í dag má skreyta húsnæði sitt að innan með myndum af allsberu fólki að stunda kynlíf. Hvenær verður það orðið að dómsmáli? Í dag má vera hægrimaður sem skilur sjálfseignar- og séreignarréttinn og getur rætt hann í leigðum sal með fullu samþykkir salareiganda við alla sem greiða aðgang. Hvenær mun slíkt teljast vera árás á almannahagsmuni og lýðheilsu?

Einhver gæti talið mig vera mála skrattann á veginn hérna. Sé litið örfá ár aftur í tímann sést að svo er varla, þótt ég voni svo sannarlega að skrattinn verði seint málaður allur!

Geir Ágústsson kl. 22:14