« Viðtal við Ayn Rand | Aðalsíða | Greyið aumingjans eignarrétturinn nú til dags »

15. júlí 2007

Frjálshyggjumenn eru þverhausar

Frjálshyggjumenn fá oft að heyra það að þeir séu þverhausar sem neiti að skipta um skoðun. Þessi lýsing er ekki röng og raunar er fátt sem lýsir frjálshyggjumönnum betur en þvermóðska þeirra. Þeir neita nefnilega að setja frjálsan vilja í annað sætið á eftir einu né neinu.

Þetta má skýra með dæmi. Nú eru þeir margir sem vilja að höfuðborgarbúar borgi sérstaklega til þess að fólk sem býr út á landi geti gert það áfram þótt enginn sérstakur grundvöllur sé fyrir því. Þetta heitir að setja byggðamál í öndvegi og á að benda til sérstakrar ástúðar á hinum íslenskum sveitum og hinu íslenska dreifbýli.

Frjálshyggjumenn eru tregir til að samþykkja þess konar millifærslur á fé fólks. Frjálshyggjumenn neita einfaldlega að setja frjálsan vilja neðar meintum hagsmunum íslenskrar landsbyggðar. Byggðakvótar, styrkir til landsbyggðarinnar og óhagkvæmar vegaframkvæmdir fá af þeirri ástæðu seint stuðning frjálshyggjumanna, sama hverjar afleiðingarnar eru. Ef landsbyggðin hreinlega tæmist af fólki í fjarveru sértækra ríkisaðgerða þá er það ekki nóg til að fá frjálshyggjumanninn til að setja frjálsan vilja í annað sætið á eftir meintum hagsmunum landsbyggðarfólks.

Þvermóðska frjálshyggjumanna er ekki orðum aukin. Vindhani frjálshyggjumannsins bendir í átt frelsis, og breytir ekki um stefnu þótt blásið sé á hann úr öllum áttum.

Geir Ágústsson kl. 21:57