« Eignarrétturinn tók skref til baka í dag | Aðalsíða | Ertu frjálslyndur rithöfundur? »
5. júní 2007
Tilbúinn ógnvaldur umhverfisverndarsinna missir stuðning
Árum saman hafa umhverfisverndarsinnar reynt að halda því fram samtímis að í miðri hitnun Jarðar þá eigi Evrópa á hættu að lenda í ísöld. Samkvæmt þessu myndu skip geta siglt í gegnum íslausan Norðurpólinn en geta svo ekki affermt farm sinn í ísbundnum höfnum Norður-Evrópu.
Það sem var notað til að búa til evrópska ísöld á sama tíma og allur heimurinn er að hitna er eyðilegging Golfstraumsins, sem flytur vatn frá miðbaug Jarðar til strandlengju Norður-Evrópu. Bráðinn ís frá Norðurskautinu mun að sögn yfirbuga Golfstrauminn og skilja Evrópu eftir varnarlausa fyrir árás ískalds lofts sem streymir frá Norðurskautinu - sama ískalda loftið og skýrir mun kaldara loftslag Austur-Kanada. Austur-Kanada liggur á sömu breiddargráðu og Norður-Evrópa en nýtur ekki góðra áhrifa Golfstraumsins.
Enginn "vísindamanna" umhverfisverndarsinna virðist hafa tekið eftir fáránleika þess að halda því fram að ískalt loft muni áfram streyma frá Norðurskautinu sem þeir þreytast seint á að fullyrða að sé að sjálft að hlýna.
Hiti frá Golfstraumnum er nauðsynlegur til að halda Evrópu hóflega hlýrri í skugga hins kalda lofts frá Norðurskautinu. Hann er ekki nauðsynlegur þegar ískuldi Norðurskautsins hverfur. Umhverfisverndarsinnar kjósa að líta framhjá þessu. Þeir tóku afstöðu sem má líkja við hugarástand geðtruflaðs manns, sem ruglar afleiðingum þess að vera jakkalaus í júlí við afleiðingar þess að vera jakkalaus í febrúar. Það er eitt ef Golfstraumurinn hyrfi í loftslagsástandinu sem heimurinn hefur vanið sig við. Það er eitthvað allt annað ef hann hyrfi á sama tíma og Norðurskautið væri orðið svo hlýtt að mestallur ís þess væri bráðnaður.
Umhverfisverndarsinnar og fylgismenn þeirra í fjölmiðlunum voru og eru ekki uppteknir af röklegu samhengi. Röklegt samhengi krefst þess að halda samhenginu og gera greinarmun á mismunandi samhengi. Það sem þeir eru uppteknir af er allt sem hægt er að nota til að hræða fólk: hlýnun, kólnun; flóð, þurrkar; þetta er eitt og hið sama. Ef það skýtur fólki skelk í bringu þá er leikur þeirra sá að spila á þann ótta.
Hvað um það, þessi tilbúni ógnvaldur gæti verið á undanhaldi. Frétt í New York Times frá 15. maí 2007, sem ber heitið "Scientists Back Off Theory of a Colder Europe in a Warming World" (sækja þar um aðgang en það er gjaldfrjálst), útskýrir hvers vegna.
Þessi uppgjöf er ekki byggð á neinni viðurkenningu á innbyrðis mótsögnum röksemdarfærslunnar heldur á gögnum sem benda til að Golfstraumurinn er ekki svo auðveldlega sigraður og einnig að hann er ekki eina uppspretta hlýnunar fyrir Evrópu; fastir vindar (e. prevailing winds) og aðrir þættir eru nú viðurkenndir sem mikilvægari en Golfstraumurinn.
Ekki búast við því að þessi uppgjöf þýði að fullyrðingar um ísöld í Evrópu verði yfirgefnar. Á meðan heimurinn er fullur af fólki sem er nógu trúgjarnt til að láta hræða sig með sögunni þá munu umhverfisverndarsinnar halda áfram að segja hana.
Þessi pistill er lausleg þýðing á færslu á bloggsíðu Mises stofnunarinnar sem birtist upphaflega þann 19. maí undir heitinu "Environmentalist Bugaboo Loses Support". Höfundurinn, George Reisman, á og rekur síðuna Capitalism.net.
Geir Ágústsson kl. 11:30