« Fjölmiðlar og umræðan um gróðurhúsaáhrifin | Aðalsíða | Hvenær endar útþensla ríkisvaldsins? »
17. júní 2007
Stjórnmálalaust sumar
Á sumrin gefst Íslendingum sjaldgæft tækifæri til að sjá fyrir sér samfélagið án eilífra inngripa stjórnmálamanna og háværra deilna um framkvæmdir ríkisfyrirtækja og opinberra stofnana. Stjórnmálamenn á Íslandi taka sér langt sumarfrí og Íslendingar missa áhugann á því sem þeir hafa að segja. Að öðru leyti heldur lífið áfram eins og ekkert hafi í skorist.
Samfélagsumræðan á sumrin er mun friðsælli en sú á veturna. Blöðin og sjónvarpsfréttirnar fyllast af umfjöllunum um fjölda sólskinsstunda á Norðurlandi og ástand tjaldstæða fyrir austan. Viðskiptafréttir koma í stað rifrilda milli stjórnmálaflokka um nýjustu ríkisafskiptin. Ein stór og yndisleg gúrkutíð gerir pistlahöfundunum erfitt fyrir að finna æsandi efni til að skrifa um.
Er þetta Ísland án stjórnmálamanna? Er þetta Ísland framtíðarinnar ef ríkisvaldið er stórkostlega minnkað og einskorðað við örfá og vel skilgreind verkefni? Friður og ró í samfélaginu og gúrkutíð hjá háfleygum álitsgjöfum stjórnmálaumræðunnar er ekki vandamál sem ég kvíði fyrir að leysa. Ég kvíði fyrir hinu, að sjá stjórnmálamennina snúa aftur úr sumarleyfum sínum með fullar skjalatöskur af nýjum ríkisafskiptum.
Gleðilegt sumar góðir lesendur, og megi það vara sem lengst!
Geir Ágústsson kl. 21:16