« Stjórnmálalaust sumar | Aðalsíða | Hver er vandi íslenskrar útgerðar? »

19. júní 2007

Hvenær endar útþensla ríkisvaldsins?

Þegar þýsku nasistarnir komust til valda í Þýskalandi voru ekki margir sem höfðu grun um hvaða afleiðingar það mundi hafa í för með sér fyrir þýskt samfélag. Í stjórnartíð þeirra fjölgaði smátt og smátt þeim hópum sem þeir beittu ríkisvaldinu gegn, ýmist með hótunum eða beinum handtökum og oft aftökum.

Þýski presturinn Martin Niemöller hafði í upphafi verið stuðningsmaðurinn hinnar þýsku nasistastjórnar. Eftir því sem tíminn leið varð honum samt ljóst að nú væri röðin komin að honum, og orti hann af því tilefni eftirfarandi ljóð (í lauslegri þýðingu minni):

Þegar nasistarnir ofsóttu kommúnistana,
þagði ég;
ég var ekki kommúnisti.

Þegar þeir fangelsuðu jafnaðarmennina,
þagði ég;
ég var ekki jafnaðarmaður.

Þegar þeir ofsóttu verkalýðsfélögin,
sagði ég ekkert;
ég var ekki í verkalýðsfélagi.

Þegar þeir ofsóttu mig,
þá var enginn eftir til að segja neitt.

Á Íslandi er ekki nasistastjórn, en það er e.t.v. ekki nauðsynlegt til að sjá ríkisvaldið skilgreina fleiri og fleiri hópa í samfélaginu sem óæskilega eða útlæga og beita lögreglu og löggjafarvaldi til að „hreinsa“ samfélagið af þeim. Þetta sést best hvað tóbakið varðar. Fyrst var fínkorna neftóbak bannað, en enginn sagði neitt því þeir voru fáir sem notuðu það. Þá næst var munntóbakið gert útlægt, en enginn sagði neitt því það var ekki mjög útbreitt. Jákvætt opinbert umtal um tóbak var bannað með lögum en enginn sagði neitt því fáir mærðu tóbak opinberlega.

Nú hefur eigendum einkahúsnæðis í veitingarekstri verið bannað með lögum að heimila löglega iðju reykinga á húseign sinni, en mótbárurnar eru fáar þar sem þeir eru fæstir sem reka veitingastaði.

Heldur fólk virkilega að þetta endi hér? Það held ég ekki. Næsta skref er að banna reykingar í einkahúsnæði, og þar næst reykingar og tóbak með öllu.

Heldur fólk að bönnunum hætti þá að fjölga? Hvað með feitan mat og gosdrykki? Hvað með óhollustu eins og hún leggur sig? Hvað með neikvætt umtal um blökkumenn og kvenfólk? Hvað með ákveðin kynjahlutföll innan stjórna fyrirtækja og á byggingalóðum?

Ríkisvaldið mun ekki stoppa í útbreiðslu sinni á boðum og bönnum á meðan slíkri útbreiðslu er ekki mætt með andspyrnu. Ef ferlinu er leyft að halda áfram þá munu margir upplifa það sem hinn þýski prestur upplifði þegar stjórnvöld réðust gegn honum: Að nú sé enginn eftir til að verja málstað manns.

Geir Ágústsson kl. 20:16