« Ertu frjálslyndur rithöfundur? | Aðalsíða | Stjórnmálalaust sumar »
14. júní 2007
Fjölmiðlar og umræðan um gróðurhúsaáhrifin
Fjölmiðlar eru ein helsta uppspretta upplýsinga fyrir hinn almenna borgara. Þeim er treyst til að fjalla um málin á yfirvegaðan og gagnrýninn hátt og frá sem flestum sjónarhornum, kafa í erfiðu málin og velta við steinum sem þarf að velta.
Þetta er of mikið traust til að veita fjölmiðlum, því þegar allt kemur til alls samanstanda þeir bara af fréttamönnum, og fréttamenn hafa oft engan áhuga á að gera annað en endurtaka froðuna sem vellur upp úr öðrum fréttamönnum.
Framhald þessarar færslu er texti (og myndir) úr upplýsandi skýrslu og samantekt sem nefnist Hot & Cold Media Spin Cycle: A Challenge to Journalists who Cover Global Warming, og valdi ég bls. 8-12 til birtingar hér. Ég mæli með skýrslunni í heild sinni til að opna augu sem áður voru lokuð.
Lesturinn á skýrsluhlutanum hér að neðan tekur u.þ.b. 10 mínútur og veitir sennilega mörgum glænýja innsýn inn í hugarheim fréttamanna sem eiga að vera fræða okkur um fjörugar deilur vísindamanna um loftslagsbreytingar, en eru í raun bara að þylja upp það sem telst mest krassandi á hverjum tíma, oft án tillits til þess hversu mikið er í raun á bak við fréttina.
Njótið!




Geir Ágústsson kl. 18:23