« Tilbúinn ógnvaldur umhverfisverndarsinna missir stuðning | Aðalsíða | Fjölmiðlar og umræðan um gróðurhúsaáhrifin »
11. júní 2007
Ertu frjálslyndur rithöfundur?
Á Frjálshyggja.is er nú að finna örlitla ábendingu fyrir frjálslynda rithöfunda. Bandaríska hugveitan Mackinac Center for Public Policy stendur fyrir skáldsagnarkeppni sem á að hvetja til skáldlegra skrifa um baráttu mannsins gegn ofríki hins opinbera. Nánari upplýsingar um keppnina má finna hér. Keppnin er alþjóðleg, þátttaka er gjaldfrjáls og skilafrestur er til 1. janúar 2008.
Að sögn verkefnisstjóra keppninnar er innblásturinn á bak við hana fenginn úr vel þekktum skáldsögun C.R. Lewis um Narniu og Hringadróttinssögu J.R.R. Tolkien, þar sem frjálshuga hetjur berjast gegn ofríki hins opinbera. Von keppnishaldara er sú að það takist að hvetja frjálshuga rithöfunda til að skrifa skáldsögur sem bera með sér svipaðan boðskap.
Þungar og þurrar stjórnmálaheimspekibækur, skrifaðar af sprenglærðum sérfræðingum fyrir sprenglærða sérfræðinga, verður seint hægt að skipta út fyrir afþreyingarbókmenntir. Hins vegar er ekki víst að þung matreiðsla af því tagi skili sér alltaf til þeirra sem daglega þurfa að brjóta sér leið í gegnum hindranir hins opinbera og halda að það sé eðlilegt ástand í frjálsu samfélagi. Skáldsagan kemur þá inn sem prýðileg leið til að auka útbreiðslu á skilningi á ríkisbákninu og skýra það sem ekki er rætt í fjölmiðlum og af stjórnmálamönnum.
Geir Ágústsson kl. 20:51