« Fjársvelti? Nei það er öðru nær | Aðalsíða | Skuldir heimilanna eru mál heimilanna! »

1. maí 2007

Til hamingju með 1. maí

Ég vil nota tækifærið á þessum baráttudegi verkalýðsins og óska Íslendingum með hamingju með daginn. Þökk sé auðsköpun og sívaxandi framleiðnibætingu hvers vinnandi manns, sem daglega næst fram í samkeppnisumhverfi hins frjálsa markaðar í krafti kapítalisma og virðingar fyrir eignarréttinum, þá geta menn tekið sér frí til að hitta mann og annan á fjöldasamkomum, hlýða á ræður verkalýðskólfa og alþingismanna og slappa af með fjölskyldunni. Þótt sögulega séð hafi verkalýðsfélög unnið mörg skemmdarverkin á velferðaraukningu almennings, og þótt lagaskylda sem þvingi menn til að sitja heima frekar en mæta til vinnu sé forræðishyggja og frelsisskerðing af slæmu stigi, þá má engu að síður gleðjast yfir því hversu hátt kapítalisminn hefur lyft lífskjörum hins vinnandi manns.

Látum ekki rauðu fánana blekkja okkur. Baráttudagur verkalýðsins, 1. maí, er uppskeruhátíð kapítalismans (ein af mörgum á dagatalinu).

Geir Ágústsson kl. 15:53