« Forgangsröđun vandamálanna | Ađalsíđa | Eignarrétturinn tók skref til baka í dag »

21. maí 2007

Stundum er bara ein skođun rétt

Sumir halda ţví fram ađ allt sé til umrćđu og sé bara spurning um ađ ná málamiđlun eđa meirihlutasamţykki. Umrćđustjórnmálin ganga út á ađ í raun séu ekki til hugsjónir og ađ umrćđan snúist bara um ađ ná málamiđlun sem meirihlutinn getur sameinast um. Sú málamiđlun er ćtíđ sanngjörn og réttmćti hennar felst í ţví ađ margir náđu saman um hana.

Umrćđustjórnmálamenn viđurkenna ekki ekki sjálfseignarrétt einstaklinga. Einstaklingar mega ekki neyta hvađa efna sem ţeir vilja - efna sem voru framleidd og seld í frjálsum viđskiptum án ţvingunar. Meirihlutinn og fulltrúar hans á löggjafarsamkundunni ákváđu ađ ţetta vćru lög sem gengju yfir alla.

Umrćđustjórnmálamenn viđurkenna ekki tilvist einkaeignarréttarins. Hann er bara hugtak sem má móta og rćđa fram og til baka ţar til meirihlutinn kemst ađ einhverri niđurstöđu. Ef t.d. mađur sem telur sig eiga húseign leyfir öđrum en vinum sínum og vandamönnum ađ ganga inn í hana og skipta á peningum fyrir mat og drykki ţá hverfur eignarréttur hans. Meirihluti fólks eđa fulltrúar meirihlutans ákváđu nefnilega ađ ef húseigandi sýnir gestrisni af ţessu tagi ţá rćđur viđkomandi ţví ekki lengur hvort og hvar reykingar eru heimilar, hvort bođiđ sé upp á eitt klósett eđa ţrjú og hversu lengi gestagangurinn má vara.

Margir standa fast á ţví ađ til séu réttindi sem ekki er hćgt ađ skerđa međ réttmćtum hćtti (ţótt alltaf sé hćgt ađ leiđa réttmćti hjá sér og skerđa međ valdbođi). Sumir ţeirra sem hvađ fastast standa kalla sig frjálshyggjumenn, en ţađ er ekki einhlítt. Ţrjóska ţeirra stađföstu til ađ gefa eftir hugsjónir, rökhugsun og skynsemi er oft uppnefnd - jafnvel kallađ „trúarbrögđ“ og fer afskaplega í taugarnar á umrćđustjórnmálaspekingunum.

Eftir stendur samt ađ einstaklingar í heimi umrćđustjórnmála eru ađ beita eigin heila og raddböndum til ađ tjá sínar skođanir og hugleiđingar, og ţar međ geta ţeir ekki afneitađ sjálfseignarrétti sínum nema ţeir sýni fram á ađ ţeir séu ađ brjóta á eignarrétti einhvers annars međ notkun eigin líkama og hugsana.

Ţeirra „trúarbrögđ“ hljóta ađ felast í ţví ađ afneita rökhugsun og kjósa frekar ađ sveima um í reikulum heimi ţar sem Hitler var bara sannfćrandi rćđumađur og röggsamur leiđtogi og epli rjúka upp í loftiđ ţegar ţau sleppa af greinum eplatrjáa. Ţeir um ţađ.

Geir Ágústsson kl. 18:05