« Hvernig á að skipta þjóðarkökunni? | Aðalsíða | Stundum er bara ein skoðun rétt »
20. maí 2007
Forgangsröðun vandamálanna
Í þessari ræðu bendir danski tölfræðingurinn (og vinstrimaðurinn) Bjørn Lomborg okkur á að ef við leggjum of mikla áherslu á eitt vandamál þá munum við leggja of litla áherslu á annað vandamál. Ef pening er eytt í að reyna hafa áhrif á loftslag Jarðar þá mun pening ekki verða eytt í lækningu sjúkdóma og útrýmingu hungurs og vannæringar.
Þessi boðskapur er ekki nýr eða framandi í okkar eyrum. Allir vita að annaðhvort er keyptur stærri bíll eða dýrari ferð á sólarströnd. Almennt erum við mjög meðvituð um að fé eytt á einum stað verður ekki eytt af okkur á öðrum stað líka. Engu að síður mætir þessi boðskapur Bjørns um forgangsröðun á heimsvísu mikilli andstöðu vinstrimanna.
Hvað veldur? Ásókn vinstrimanna í yfirráð yfir hinum frjálsa markaði? Lækning malaríu mun ekki svala þeirri ásókn. Stofnun alþjóðastofnana sem hafa mikil afskipti af orkunotkun allra landa er hins vegar prýðilegt tæki til að lauma sósíalisma inn um bakdyrnar. Þetta er hugarfar hinna grænu sósíalista með rauðu hjörtun.
Allt tal um að leysa vandamál heims er marklaust tal ef forgangsröðun er fjarri og því sópað undir teppið að mikil áhersla og mikið fjáraustur í eitthvað sem skilar mjög litlu til mjög fárra hefur áhrif á það sem er hægt að gera sem bjargar lífum milljóna og bætir líf enn fleiri fyrir mun minna fé og fyrirhöfn og á mun skemmri tíma.
Geir Ágústsson kl. 15:19