« Stundum er bara ein skoðun rétt | Aðalsíða | Tilbúinn ógnvaldur umhverfisverndarsinna missir stuðning »

31. maí 2007

Eignarrétturinn tók skref til baka í dag

Á morgun, 1. júní 2007, taka í gildi lög sem flytja reykingastefnu einkarekinna skemmti- og veitingastaða á Íslandi frá húseigendum til opinberra embættismanna. Þetta er stór dagur fyrir Íslendinga. Eignarrétturinn var rýrður töluvert og það réttlætt með vísun í skýrslur og ósannfærandi vísindarannsóknir, auk háværra slagorða frá sérhagsmunasamtökum sem fá borgað fyrir að mála skrattann á vegginn. Neytendur hafa auðvitað sitt að segja líka en þegar allt kemur til alls voru troðfullir reykmettaðir skemmtistaðir og kaffihús ekki sannfærandi yfirlýsing um vilja þeirra. Þeir fáu og háværu sem hafa farið á djammið í Svíþjóð fengu einir að tjá sig fyrir hönd viðskiptavina, eigenda og starfsmanna skemmtistaða og veitingahúsa.

Auðvitað er eignarréttur nú þegar skertur þótt ekki væri fyrir hin nýju lög. Sumum er gert að bjóða upp á klósettaðstöðu og þrífa svo og svo oft. Sækja þar um leyfi til að fá að skiptast á fé og áfengi og tóbaki í eigin húseign. Ekki má hafa allar húseignir jafnlengi opnar. Nýjasta skrefið í átt að afnámi eignarréttarins - flutningur á reykingastefnu húseigenda frá eigendum þeirra til opinberra starfsmanna - er bara eitt af mörgum. Engu að síður er ástæða til að syrgja þróunina sem vitaskuld á ekkert skylt við þann anda sem stjórnarskrá Íslands er skrifuð í.

Ekki þarf mikið ímyndunarafl til að sjá hvar þróun af þessu tagi endar. Hvað eiga sérhagsmunasamtök og unnendur vaxandi ríkisvalds að heimta nú þegar tóbaki hefur verið úthýst af húseignum í einkaeigu sem hafa opið fyrir gesti og gangandi? Næsta skref er að úthýsa tóbaki úr öllu húsnæði. Þar á eftir kemur bann á tóbaki. Feitur matur tekur fljótlega við, sem og gos og sælgæti. Þróunin er hafin á öllum vígstöðvum. Mótstaðan er lítil og veik og nýtur ekki hylli löggjafar- og framkvæmdarvaldsins.

Í dag syrgi ég enn eitt tap eignarréttarins fyrir pólitískum rétttrúnaði.

Geir Ágústsson kl. 21:29