« Snýr Skattmann aftur í dag? | Aðalsíða | Þensla og verðbólga eru afleiðingar ríkisafskipta »
14. maí 2007
Þegar græningjar vissu ennþá af einstaklingnum
Fyrir um 15 árum, þegar ég var ungur drengur að uppgötva heiminn, þá var eftirfarandi slagorð eitt af því fyrsta sem ég heyrði koma frá umhverfisverndarhreyfingunni:
Think global, act local!
Þetta var slagorð sem var auðvelt að taka til sín. Með því að taka til í eigin garði og passa upp á sitt nánasta umhverfi væri hægt að láta að sér kveða í heiminum, því margt smátt gerir eitt stórt, og samtakamáttur fjöldans er mikill. Hver og einn getur e.t.v. ekki lyft þungu hlassi, en með samvinnu og samstarfi hefst það. Svona var a.m.k. hugsunin þá.
Nú er öldin önnur. Núna segir umhverfisverndarhreyfingin: Hver og einn getur ekki haft nein teljanleg eða mælanleg áhrif. Nú þarf að fyrirskipa aðgerðir á samningaborði ríkisstjórna, og alheimsmælikvarða, því annars mun ekki takast að ná fram þeim breytingum sem að er stefnt.
Act global, or not at all!
Að mínu mati er þetta mjög dapurleg breyting á hugsunarhætti. Einstaklingum er sagt að það sé í lagi að aka um á bensínþyrstum bílum og fljúga um með lágflugfargjaldaflugfélögum, jafnvel oft á ári, því hver og einn einstaklingur hefur engin teljanleg áhrif. Ákveði hins vegar ríkisvaldið að herja á verðlag á orku og eldsneyti með sköttum og viðskiptahöftum þá sé það hið besta mál og nauðsynlegasta, og þú verðir einfaldlega að una afleiðingum dýrari og minni orkuneyslu þegar hinu opinbera þóknast að kalla þær yfir þig.
Ég sakna hins gamla slagorðs umhverfisverndarhreyfingarinnar. Það virti a.m.k. einstaklinginn sem sjálfstæða lífveru með hæfileika og getu til að taka sjálfstæðar og upplýstar ákvarðanir. Nú er öldin önnur.
Geir Ágústsson kl. 18:36