« Samfélagið er ekki sjálfstæð lífvera | Aðalsíða | Krafturinn sem býr í einstaklingunum »

24. apríl 2007

Velferðarsamfélagið (svokallaða)

Íslendingar sem hafa búið í t.d. löndum Skandinavíu þekkja vel til orðsins „velfærd“ (velferð). Skandinavar nota það gjarnan þegar þeir tala um leikskóla, elliheimili, barnabætur, sjúkrahús og þess háttar, þ.e. um verkefni ríkisvaldsins í samfélagi þar sem ríkið er fyrirferðarmikið.

Notkun á velferðar-orðinu er með svolítið öðrum hætti á Íslandi. Vissulega er talað um velferðarsamfélagið (þó yfirleitt sé það bara kallað félagslega kerfið) og þar átt við að samfélagið sé uppfullt af verkefnum sem ríkið krefst þess að fá að sinna og varða okkur öll á einhvern hátt. Hins vegar segja fæstir Íslendingar að aukið fjáraustur í velferðarkerfið þýði „meiri velferð“. Ég hef a.m.k. ekki heyrt neinn nota orðið í því samhengi á íslenskri tungu. „Velferð“ sé þvert á móti það að geta séð um sig sjálfur, haft það gott og þurfa ekki að biðja um neitt frá öðrum til að svo sé, sé þess kostur.

Skandinavískir vinstrimenn hugsa öðruvísi. Þeir vilja meina að sem flestir eigi að vera upp á hið opinbera komnir og segja að „meiri velferð“ sé meira fé til að sinna ófrjálsum skjólstæðingum ríkisins. Nú reyna íslenskir vinstrimenn sem hafa kynnst því tungutaki að innleiða það í íslenskt. Þeir sem hafa drukkið ódýrt danskt öl á meðan þeir stunduðu niðurgreitt nám í Kaupmannahöfn ætla nú að reyna segja Íslendingum að aukið fjáraustur í vaxandi opinberar stofnanir sé aukning á „velferð“.

Ég segi bara: Gefist upp strax!

Geir Ágústsson kl. 16:04