« Einfalt reikningsdæmi? | Aðalsíða | Velferðarsamfélagið (svokallaða) »
22. apríl 2007
Samfélagið er ekki sjálfstæð lífvera
Oft hef ég séð menn ræða um samfélagið sem einhvers konar sjálfstæða einingu, án tengingar við einstaklingana sem það mynda. Talað er um skuldir samfélagsins, ábyrgð þess, skyldur og verkefni. Menn segja að samfélagið eigi að sjá um menntun, uppeldi, heilbrigðisþjónustu, eigi að hvetja einstaklinga til að stunda íþróttir og tónlistarnám, halda klassíska tónleika og ég veit ekki hvað og hvað. Stundum mætti ætla að úr því Pétur og Róbert ákváðu að flytja í sama stigagang hafi orðið til þriðji einstaklingurinn, Samfélagið, sem nú hefur réttindi, kröfur og skyldur umfram Pétur og Róbert. Svo er ekki.
Ég viðurkenni að til að einfalda mál sitt er oft gagnlegt að tala um samfélagið frekar en að nota hina óþjálu orðaröð, samansafn einstaklinga sem búa á ákveðnu svæði og eru undir vald sama ríkisvalds settir. Hins vegar er mikilvægt að hafa í huga að samfélagið er ekkert annað en nákvæmlega það - samansafn einstaklinga sem ferðast um á svipuðu svæði, búa á því og vinna.
Samfélagið sem slíkt hefur engar aðrar skyldur og engin önnur verkefni en þau sem einstaklingar þess hafa. Samfélagið sem slíkt á ekki að stuðla að íþróttaiðkun eða reglulegum heimsóknum barna til tannlækna. Svoleiðis atriði eru undir einstaklingunum sjálfum komin, þá annaðhvort í samvinnu við aðra eða ekki.
Samfélag í stuttu máli hefur því engum skyldum að gegna, og hefur enga ábyrgð umfram þá sem einstaklingarnir sem mynda það hafa. Samfélagið er ekki sjálfstæð eining sem lifir eigin lífi. Hún er til á meðan einstaklingar eru til tveir eða fleiri á sama svæði, og deila ákveðnum gæðum eða verkefnum af fúsum og frjálsum vilja.
Geir Ágústsson kl. 20:36