« Tæknibrellur? | Aðalsíða | Það sem ekki verður kosið um í vor »

6. apríl 2007

Innflytjendur eru verðmætari en listamenn

Frjálslyndi flokkurinn náði svo sannarlega að hleypa lífi í alla umræðu um íbúa af erlendum uppruna á Íslandi. Umræðan snýst að vísu aðallega um það hvað Frjálslyndi flokkurinn er rasískur og fordómafullur en við öðru er ekki að búast í landi sem sögulega séð hefur verið fátækt og síður svo aðlaðandi fyrir erlenda borgara, en á síðustu árum orðið að heitum potti í kólnuðu hagkerfi Evrópu og þar með sífellt eftirsóttari áfangastaður til skemmri eða lengri tíma fyrir útlendinga af öllu tagi.

Aukinn fjöldi útlendinga á Íslandi er ekki umkvörtunarefni í sjálfu sér. Íslendingar hafa tekið við útlendingum með svolítið öðrum hætti en hin Norðurlöndin, auk Þýskalands og Frakklands og víðar. Þar á bæ hafa útlendingar verið álitnir fórnarlömb sem þarf að hlúa að en ekki sem fólk í leit að betra lífi. Félagslegum bótum er þar hrúgað á fólk í þeirri von um að það þurfi ekki að leita út á atvinnumarkaðinn og þar með keppa um störf sem óðum fækkar í stöðnuðum sósíaldemókratískum hagkerfum. Þessa leið hafa Íslendingar ekki farið nema að takmörkuðu leyti, og þess í stað lagt allt kapp á að hvetja útlendinga til að kaupa eigið húsnæði, læra á mennta- og heilbrigðiskerfið og fá sér vinnu. Hvatinn til að læra tungumálið kemur sjálfkrafa hjá þeim sem á annað borð hafa þörf og áhuga á því. Hvatinn til að borða kæstan hákarl og drekka íslenskt brennivín sömuleiðis.

Ég legg til að Íslendingar hætti að eyða tíma og orku í að hafa áhyggjur af útlendingum sem af einhverjum ástæðum hafa ákveðið að setjast að á Íslandi, til lengri eða skemmri tíma. Ef menn óttast gettómyndanir og einangrun nýrra Íslendinga er besta ráðið einfaldlega að halda ríkisvaldinu að sem mestu utan við inn- og útflutning fólks til og frá landinu. Fólk sem hingað kemur í leit að betra lífi má vitaskuld aðstoða við að læra inn á kerfið, bara á meðan kerfið lítur ekki á það sem hlutverk sitt að borga fólki fyrir að sitja heima á kostnað þeirra sem fyrir eru. Þótt fræðimenn félagsvísindanna og vinstrisinnaðir listamenn uppskeri því miður ekki andúð og félagslega einangrun fyrir að lepja skattspenann án vinnuframlags þá munu innflytjendur gera það. Þetta er reynsla Norðurlandanna sem Íslendingum ber vonandi gæfa til að forðast.

Geir Ágústsson kl. 10:00