« Krafturinn sem býr í einstaklingunum | Aðalsíða | Til hamingju með 1. maí »

30. apríl 2007

Fjársvelti? Nei það er öðru nær

Ein margtuggnasta þvæla íslenskrar stjórnarandstöðu er sú að tala um að íslenskt heilbrigðiskerfi hafi búið við „fjársvelti“ seinustu ár. Hér er eitt dæmi um slíkan málflutning:

Varðandi heilbrigðiskerfið yrði því [ef Sjálfstæðisflokkur heldur völdum eftir kosningar] haldið í fjársvelti líkt og síðustu ár sem myndi kalla á einkarekstur sem myndi svo aftur skapa svokallað tvöfalt kerfi þar sem hægt væri að kaupa sig framfyrir í röðina á kostnað þeirra sem efnaminni eru – jafnréttið yrði því fyrir borð borið í heilbrigðiskerfinu eins og annars staðar.
Þessi tilvitnun er röng í næstum því hverju einasta orði.

Í fyrsta lagi er hið opinbera ekki með tvær móttökur fyrir sjúklinga á stofnunum sínum. Annaðhvort fer sjúklingur í röðina hjá ríkinu, eða hann fer í aðra röð hjá einhverjum öðrum. Þeir sem kaupa heyrnartæki hjá Heyrnar- og Talmeinastöð Íslands (sem er ríkisfyrirtæki) gera það ekki hjá Heyrnartækni (sem er einkaaðili sem tekur bæði á móti viðskiptavinum sem ríkið hefur styrkt til kaupa á heyrnartækjum og öðrum sem engan slíkan styrk hafa hlotið). Einkaaðilar búa til aðra röð, og stytta þar með þá sem liggur inn á stofnanir hins opinbera.

Í öðru lagi hafa útgjöld íslenska ríkisins til heilbrigðismála stóraukist á undanförnum árum. Ég gef Vefþjóðviljanum orðið:

Í ljósi umræðunnar sem oft skýtur upp kollinum hér á landi um „fjársvelti“ heilbrigðiskerfisins er líka athyglisvert það sem Vilhjálmur Egilsson framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins nefnir í leiðara fréttabréfsins. Vilhjálmur bendir á að útgjöld til heilbrigðismála vaxi hratt hér á landi og að samkvæmt spám OECD stefni í að íslenska heilbrigðiskerfið verði það dýrasta í heimi verði ekkert að gert. Í fyrra hafi útgjöld til heilbrigðismála og umönnunar numið um 9,6% af landsframleiðslunni og einkarekstur hafi aðeins verið nýttur að takmörkuðu leyti.
Þetta er texti sem ætti að gleðja hjarta allra vinstrimanna, en gerir það ekki. Þetta eru orð sem hryggja hvern unnanda hins frjálsa framtaks, svo vinstrimenn ættu að vera alsælir, en eru það ekki. Þeir vilja meira út í hið óendanlega.

Í þriðja lagi er alls ekki víst að þótt útgjöld í ríkisrekið heilbrigðiskerfi séu aukin enn hraðar en í dag þá muni það þýða blóm í haga fyrir sjúklinga. Samkeppni er ekki til staðar innan hins opinbera reksturs af þeirri eðlilegu ástæðu að ríkið hefur engan hag af samkeppni við sjálft sig, frekar en annar rekstraraðili. Þótt vinstrimenn tali oft eins og þeir hafi mikinn áhuga á samkeppni og kenna skorti á henni um hátt vöruverð og fákeppni, þá meina þeir, þegar á hólminn er komið, fátt með því.

Vítin eru til að varast þau. Vinstrimenn ættu að hafa það í huga örlítið oftar.

Geir Ágústsson kl. 21:26