« Frelsi til að sleppa því? | Aðalsíða | Samfélagið er ekki sjálfstæð lífvera »

19. apríl 2007

Einfalt reikningsdæmi?

Þegar vinstrimenn koma upp um vanþekkingu sína á hagfræði og sambandi framboðs og eftirspurnar þá gera þeir það með glæsibrag! Múrverji fær orðið:

Byggðastefna ætti að ganga út á að fólki sé ekki mismunað eftir búsetu, að vörur og þjónusta kosti jafn mikið á landsbyggðinni og á höfuðborgarsvæðinu, og að allir geti nálgast grunnþjónustu nálægt þeim stað sem þeir búa á.
Jahá, það er ekki lítil sú ábyrgð sem liggur á herðum ríkisvaldsins á Íslandi! Væntanlega er innifalið í þessu gríðarstóra verkefni hins opinbera að gera húsnæði og lóðaverð á höfuðborgarsvæðinu jafnódýrt og það er úti á landi, auk þess sem aðgengi að grænni náttúrunni verði jafngott á landinu öllu.

Megi gæfa og guðs náð forða okkur frá þeim stórkostlegu opinberu afskiptum af verðlagi sem Múrverjinn boðar. Sú efnahagstilraun hefur verið reynd annars staðar, og mistókst með hörmulegum afleiðingum.

Geir Ágústsson kl. 14:56