« Boð og bönn lengja líf! | Aðalsíða | ...er vegurinn heim »

6. mars 2007

Tvær leiðir að sama marki

Spurt er:
Hvernig er auðveldast að tryggja að land sé ekki nýtt til stóriðju eða sem lónstæði eða undir virkjunarmannvirki?

Möguleikar:

  1. Skrifa harðorðar blaðagreinar, úthrópa þá sem hafa aðrar hugmyndir um nýtingu landsins, biðla til stjórnmálamanna, beita hópþrýstingi, hlekkja sig við vinnuvélar, stunda skemmdarverk á verkfræðistofum og uppnefna aðra umhverfissóða og afturhaldssinnaða iðnaðarsinna. Halda því jafnframt fram að ríkið eigi að standa í umsýslu lands og eiga hlutafé í orkufyrirtækjum.
  2. Kaupa landið, t.d. í samstarfi við stóra hópa einstaklinga sem hafa sömu hugmyndir um nýtingu þess og þú, og afþakka öll bónorð um virkjunarframkvæmdir og mannvirkjasmíði á því.
Dæmi hver fyrir sig hvor leiðin er vænlegri til árangurs.

Geir Ágústsson kl. 17:21