« Er mannkynið að stuðla að hitnun Jarðar? | Aðalsíða | Hvenær er þvingun réttlætanleg? »

19. mars 2007

Málþófshótun kæfði áfengisfrumvarp

Enn og aftur sýnir Vinstrihreyfingin - grænt framboð forsjárhyggjuklærnar. Vísir.is segir svo frá:

Frumvarp, sem hefði heimilað sölu léttvíns og bjórs í matvöruverslunum, var hársbreidd frá því að ná í gegn. Allsherjarnefnd Alþingis hafði samþykkt málið en áður en kom að lokaafgreiðslu í gær var því kippt út af dagskrá af ótta við málþóf. Fjórtán þingmenn stóðu að frumvarpinu en fyrsti flutningsmaður var Guðlaugur Þór Þórðarson. Samkvæmt því skyldi einokun Áfengis- og tóbaksverslunar ríkisins verða afnumin á sölu áfengis með vínandastyrk 22 prósent eða minna.

Allsherjarnefnd Alþingis lagði til í fyrradag að frumvarpið yrði samþykkt en venjan er að mál sem ná svo langt verði að lögum. Vinstri grænir lögðust hins vegar gegn málinu og á fundi þingflokksformanna gaf Ögmundur Jónasson til kynna að það myndi kosta geysimikla umræðu ef menn reyndu að ná því í gegn. Málinu var því kippt út af dagskrá.

Þótt auðvitað sé dapurlegt að sjá meirihluta þingheims bugast undan rósi skreyddri málþófshótun er hitt ljóst að þarna vann forræðishyggjan enn einn sigur á Íslandi. Löglega afgreitt frumvarp, komið í vel á veg á leið sinni í gegnum þingumræðu og vantaði bara herslumuninn upp á að yrði að lögum, dó í gær. Hið makalausa og mikið notaða uppátæki íslenskra vinstrimanna (fyrst og fremst), málþófið, lá í loftinu. Fulltrúalýðræðið, sem vissulega hefur sýna galla, var virt að vettugi og lagabreytingin góða, sem eingöngu snérist um það að treysta öðrum en ríkisstarfsmönnum fyrir sölu á löglegum neysluvarningi, féll til jarðar.

Þetta eru dapurlegir málavextir. Vinstri-grænir sýndu enn og aftur í verki að þeir eru forræðishyggjupostular sama hvað þeir annars segja um sjálfa sig. Sömu menn og nánast boðuðu borgarastyrjöld á Íslandi ef bjórsala yrði leyfð rísa nú upp enn á ný og hóta þingheimi ef hann vogar sér að leyfa Íslendingum að versla með bjór og léttvín utan ríkisverslananna.

Hvernig ætli ungt fólk af vinstrivængnum bregðist við þessu? Líklega verða viðbrögðin á tvo vegu: Alger þögn um málið, eða reiðipredikanir um hvað Íslendingar, aðrir en pistlahöfundar, eru miklir óvitar sem kunna ekkert með áfengi að fara.

Málþófshótun kæfði áfengisfrumvarp. Vinstri-grænir kæfðu framgang einstaklingsfrelsis á Íslandi, aftur!

Geir Ágústsson kl. 18:26