« Hin ónefnda lausn á meintu vandamáli | Aðalsíða | Tvær leiðir að sama marki »
3. mars 2007
Boð og bönn lengja líf!
Mér finnst eftirfarandi texti eiga heima víðar en á síðu forræðishyggjumannanna á Múrnum:
„Rök“ þeirra sem vilja gera okkur að meiri gosþömburum eru gamalkunn: Þeir sem vilja standa vörð um lýðheilsusjónarmið eru sakaðir um forræðishyggju. Og vissulega má kalla þetta forræðishyggju. Það er líka forræðishyggja að banna vímuefni, áfengisauglýsingar og takmarka sölu áfengis. Það er forræðishyggja að beita kröftum hins opinberra til að auka meðalævilíkur Íslendinga. Þessi forræðishyggja hefur tvöfaldað meðalævilíkur Íslendinga á rúmlega einni öld. Þess vegna höfum við opinbert heilbrigðiskerfi og stofnanir eins og Lýðheilsustöð.Nú er bara að ákveða hvað á að banna næst til að þrýsta meðalævilíkum Íslendinga upp í 140 ár! Ég leyfi mér að stinga upp á banni gegn feitmeti, hreyfingarleysi og hinum hættulegu, agnalosandi ljósritunarvélum.
Geir Ágústsson kl. 12:13