« Hvenær er þvingun réttlætanleg? | Aðalsíða | Vinstra vor, og hvað svo? »
27. mars 2007
Bæta verður stöðu lágvaxinna karlmanna, eða hvað?
Ljóst er að ákveðinn kerfisbundinn launamunur er til staðar í samfélagi okkar. Sá munur hefur verið mældur í ótal könnunum og mörgum þykir ljóst að ekki verði þrætt fyrir niðurstöðurnar. Málið er nefninlega það að myndarlegt fólk þénar meira en ómyndarlegt fólk, feitar konur þéna minna en grannar konur og hávaxið fólk þénar betur en lágvaxið.
Nú brosa auðvitað margir út í annað og gera ekki mikið mál úr könnunum sem þessum. Enginn er að stinga upp á löggjöf til að stemma stigu við því sem virðist vera almennt ástand en er dálítið vandræðalegt að viðurkenna. Einstaklingar eru mismunandi, bæði hvað innræti og útlit varðar, og auðvitað er það svo að eitthvað hefur áhrif á aðra einstaklinga og er útlit þar bara einn þáttur af mörgum.
Hvernig stendur samt á því að annars konar kannanir, sem benda til launamunar á einstaklingum eftir því hvers konar kynfæri þeir bera, ná athygli svo margra og jafnvel stjórnmálamanna og löggjafans? Hvers vegna að brosa að því að lágvaxnir mælist launalægri en hávaxnir, en hrópa og skrækja þegar konur mælast, á einhverjum mælikvarða, launalægri en karlmenn?
Munurinn er sá að hróp og köll í nafni kynbundins launamuns skora pólitísk stig og þar með hugsanlega atkvæði, áhrif og völd. Hróp og köll vegna annarra tegunda launamunar eru ekki þess eðlis að atkvæði leiti til þeirra sem hafa áhyggjur af t.d. launamálum feitra kvenna. Hóparnir sem eiga í hlut í slíkum könnunum eru of óskipulagðir og dreifðir til að ná eyrum yfirvalda. Þar að auki kæra flestir sig ekkert um að flokka sig sem fórnarlömb sem heimta sérmeðhöndlun og jákvæða mismunun af hendi yfirvalda.
Ég tek þó fram að ég er í engum aðalatriðum sammála því að launamun sé hægt að mæla á milli hópa, og séu slíkar mælingar gerðar þá segja þær ekkert um stöðu hinna fjölmörgu einstaklinga innan hópanna - nákvæmlega ekki neitt. Allir geta haft áhrif á laun sín, t.d. með vali á menntun, vinnustað, vinnutíma og viljanum til að taka ábyrgð, og það að Jóna hafi 5 þús krónum minna í mánaðarlaun en Siggi á vinnustað X segir ekkert um aðstæður Nönnu á vinnustað Y. Gildir þá einu hver er feitur, lágvaxinn eða telst til myndarlegra einstaklinga.
Geir Ágústsson kl. 21:08