« Launamunur og hvað með það? | Aðalsíða | Pólitískur rétttrúnaður hafði sigur »

18. febrúar 2007

Í óþökk yfirvalda?

Borgarstjóri hefur nú sent frá sér yfirlýsingu vegna fyrirhugaðrar ráðstefnu sem á að halda í Reykjavík í næsta mánuði. Borgarstjóri segir meðal annars:

Það er því í mikilli óþökk borgaryfirvalda ef umrædd ráðstefna verður haldin hér í borg.
Síðan hvenær þurfa ráðstefnur að vera haldnar í einhverri sérstakri þökk yfirvalda? Hafi enginn glæpur verið framinn, af hverju eiga yfirvöld þá að hafa skoðun á því sem ráðstefnugestir á tiltekinni ráðstefnu vilja ræða sín á milli, eða gera ef út í það er farið?

En borgarstjóri lætur sér ekki nægja að lýsa yfir óþökk yfirvalda á tilteknu ráðstefnuhaldi. Nei, hann gengur mun lengra en það.

Ég hef þegar hvatt lögregluembættið til þess að rannsaka hvort þátttakendur í hópi ráðstefnugesta kunna að vera framleiðendur barnakláms, auk annars ólögmæts klámefnis, ef það mætti verða til þess að koma í veg fyrir dvöl meintra kynferðisbrotamanna hér á landi eða til þess að upplýsa um ólögmæta starfsemi.
Nú liggja sem sagt ráðstefnugestir allir sem einn undir grun um glæp! Borgarstjóri gefur það í skyn að áður en ráðstefnugestir geti komið hingað til lands og hist undir sama þaki þurfi að hreinsa þá af ákærum borgarstjóra um glæpsamlega starfsemi! Sekir uns sakleysi er sannað!

Er borgarstjóra svona mikið í mun að flytja ráðstefnuna til næsta sveitarfélags? Heldur borgarstjóri því fram að borgaryfirvöld eigi að hafa afskipti af fundarhöldum í borginni? Þurfa yfirvöld að samþykkja innihald og efnisdagskrá reykvískra ráðstefna áður en þær geta hafist? Gildir það jafnt um allar ráðstefnur eða bara þær sem særa blygðunarkennd borgarstjóra?

Borgarstjóra er velkomið að vera fjarverandi þegar ráðstefnugestir hittast. Af hverju lætur hann sér það ekki nægja? Er leiðin til ánauðar byrjuð að skýrast?

Geir Ágústsson kl. 14:53