« Hvað leynist í kistu vinstristjórnar? | Aðalsíða | Eru Norðurlöndin fátæk? »

5. febrúar 2007

Brot á lögum, mannréttindum og persónufrelsi

Fyrsta frétt í sjónvarpsfréttum Ríkisútvarpsins í gær fjallaði um fæðingarorlof og skerðingu greiðslna. Þannig er víst mál með vexti að greiðslur úr fæðingarorlofssjóði skerðast tvisvar ef barn fæðist í fjölskyldu með minna en 3 ára millibili. Magnús Stefánsson ráðherra svaraði spurningum fréttamanns af varfærni og komst mjög vel frá því.

Vigdís Jóhannsdóttir, sem virðist hafa komið fréttaflutningnum af stað, kom sjálf í viðtal. Vigdís, sem með dýra skartgripi sást vinna í nýrri fartölvu, virtist ekki hafa það slæmt. Flennistór flatskjár er bakvið hana í einu myndbrotinu, og allur út- og umbúnaður heimilisins sem sést af þessu stutta innslagi ber þess merki að þar fari mjög vel stæð fjölskylda, fjölskylda sem af öllum barnafjölskyldum landsins þurfi síst á fjárhagsaðstoð að halda.

Hún sagði að tekjuskerðing hennar nemi hiklaust á annað hundrað þúsund, þó hún viðurkenni að hafa ekki skoðað málin ofan í kjölinn, eins og sagt er.

Fréttamaður hafði eftir Vigdísi að þetta væri brot á lögum, mannréttindum og persónufrelsi Íslendinga. Þá sagði hún sjálf: „Ríkið er að segja fólki að það geti ekki eignast börn nema á þriggja ára millibili.“

Ég eftirlæt lesendum að gera sér í hugarlund hvað mér fannst um þessi ummæli Vigdísar.

Gylfi Ólafsson kl. 10:16