« Miðstýringin | Aðalsíða | Hvað leynist í kistu vinstristjórnar? »

29. janúar 2007

...nei, ég ætla að bíða eftir myndinni

Ein þeirra bóka sem ég hef enn ekki komið mér í að lesa er bókin Atlas Shrugged. Bókin, sem er 1200 síður og hefur enn ekki verið þýdd yfir á íslensku, er bara svo þykk að ég fæ mig ekki til þess, þrátt fyrir að hún sé af mörgum talin ein af bestu frjálshyggjubókunum sem skrifaðar hafa verið. Nú berast fregnir af því að Angelina Jolie eigi að leika Dagnýju Taggart í mynd sem byggð verður á bókinni. Það er ánægjulegt, þó það auki óneitanlega líkurnar á að ég lesi aldrei bókina.

Gylfi Ólafsson kl. 18:29