« Veitum fé til þarfs málefnis! | Aðalsíða | Hin raunverulegu gróðurhúsaáhrif »

4. desember 2006

Hugo Chavéz, hinn spillti leiðtogi Venezúela

Frægar í íslenskri dægurmálaumræðu eru hinar reglulegu varnrræður sem vefritið Múrinn.is ritar til verndar einræðisherranum vinstrisinnaða, Hugo Chávez í Venezúela. Dæmi 1 - 2 - 3 - 4. Þemað er svipað í öllum tilvikum: Þeir sem mæla illt gegn Hugo Chávez hafa rangt fyrir sér, sjá ekki hið fagra við sósíalíska stjórn hans og hanga í pilsfaldi hinnar illu Bandaríkjastjórnar Bush.

Sem betur fer eru þó til aðrar heimildir um stjórnarhætti Chávez en þær sem Múrverjar matreiða ofan í lesendur sína. Ein þeirra er nýútgefin ritgerð Cato-stofnunarinnar í Bandaríkjunum, Corruption, Mismanagement, and Abuse of Power in Hugo Chávez's Venezuela. Þar er stiklað á stóru um stjórnmálasögu Venezúela seinustu áratugi sem nær suðupunkti sínum í núverandi stjórnartíð Hugo Chávez, sem í ritgerðinni kallast sú spilltasta og ólýðræðisslegasta af mörgum vondum á seinni tímum.

Enginn þarf að velkjast í vafa um hugmyndafræðilega afstöðu Cato-manna en ritgerðin verður varla blásin af á þeim forsendum einum saman.

Tilvitnun:

[Ríkisstjórn Chávez] hefur látið búa til tvo lista af kjósendum til að beita sér gegn. Sá fyrri er listi yfir þá sem lýstu yfir vantrausti á forsetann, hinn svokallaði Tascón-listi [...]. Sá síðari er listi yfir þá sem hafa í raun kosið gegn honum, hinn svokallaði Maisanta-listi [...].

Chávez hefur oft komið fram í sjónvarpi og hótað þeim sem hafa kosið með vantrausti á honum og hefur gefið leyfi til að nota listana til að vísa mörgum íbúum Venezúela úr störfum sínum, neitað þeim um auðkennispappíra og almennt komið fram við þá eins og annars flokks borgara.

Þetta form aðskilnaðarstefnu er enn við lýði í Venezúela og margir íbúar Venezúela hafa flust úr landi eftir að hafa verið ofsóttir fyrir stjórnmálaskoðanir sínar. (bls 19)

Ritgerðin fjallar einnig um gengdarlaust fjáraustur til pólitískra vina Hugo Chávez í álfunni, meðal annars úr sjóðum seðlabanka landsins, sem og mikla flóru allskyns stofnana og leppfyrirtækja sem að nafninu til eiga að sinna ákveðnum verkefnum en tekst einhvern veginn alltaf að sólunda ráðstöfunartekjum sínum þannig að enginn viti hvar peningarnir enda.

Múrverjar (og aðrir á vinstrikantinum) hrósa auðvitað sínum manni í Suður-Ameríku fyrir að andmæla Bandaríkjunum, kaupa rússnesk vopn en ekki bandarísk, misnota og sóa olíuauði Venezúela í nafni sósíalískra hugsjóna og nota hermenn sína til að grafa skurði á friðartímum í nafni samfélagsþjónustu. Ég vona samt að sem flestir sjái í gegnum fagurgalann og líti á Hugo Chávez eins og manninn sem hann er - spilltur einræðisherra og ósvífinn pópulisti sem er fyrst og fremst í stjórnmálum til að stuðla að eigin persónulegu vinsældum, frama og frægð.

Geir Ágústsson kl. 17:28