« Hugo Chavéz, hinn spillti leiðtogi Venezúela | Aðalsíða | Endurvinnsla tekin í karphúsið »

5. desember 2006

Hin raunverulegu gróðurhúsaáhrif

Gróðurhúsaáhrif af mannavöldum eru síendurtekið þema í dægurmálaumræðunni og stanslaus uppspretta deilna hjá vísindamönnum, stjórnmálamönnum og almenningi. Að sögn bíða okkar miklar hörmungar ef við skerum ekki orkunotkun okkar niður eða lífskjör með kaupum á dýrari orku en þeirri sem olíunotkun og gasbrennsla færir okkur. Að sögn er mannkynið að hafa stórkostleg áhrif á annars sveiflukennt andrúmsloft Jarðar. Að sögn er maðurinn að eyðileggja eigin samastað í geimnum með gengdarlausi ásókn sinni í bætt lífskjör og aukinn munað, og oft gripið til vafasamra aðferða til að sýna fram á það og meint áhrif aðgerðarleysis vegna þess.

Áhrifin af þess konar tali, hvort sem í því er heil brú eða ekki, hafa verið stórkostleg. Grænir skattar eru víða lagðir á bíla og önnur orkufrek tæki. Almenningur borgar aukagjöld af raforku sinni í nafni umhverfisverndar og loftslagsbreytinga af mannavöldum. Flugfélög í Evrópusambandinu fá bráðum lögskipun um að hækka flugmiðaverð í nafni útblásturs á koltvísýring. Orkuverð er hækkað með tilheyrandi neikvæðum áhrif á hagvöxt og lífskjör. Allt er þetta gert í nafni loftslagsbreytinga af mannavöldum.

Almenningur er ekki sannfærður um eyðileggingarmátt sinn á loftslag Jarðar. Ef svo væri mundi hann einfaldlega fljúga minna, keyra styttra, kaupa færri vörur og kveikja sjaldnar á ljósaperu. Almenningur er að gera hið gagnstæða og þannig efast um heimsendaspár og tiltal stjórnmálamanna.

Hvaða lexíu má draga af þessu? Lexían er sú að ríkisvaldið fitnar og almenningur grennist. Hin raunverulegu áhrif mannsins á loftslag Jarðar eru umdeild, en óumdeild eru þau áhrif sem maðurinn er að hafa á eigin lífskjör: Hann er að skerða þau. Hin sannarlegu gróðurhúsaáhrif eru rýrnun á lífsgæðum almennings í nafni umhverfisverndar og forsjárhyggju, og skerðing á auðsköpun. Skerðing á auðsköpun hefur þær afleiðingar að færri hafa mikið fé á milli handanna en ef auðsköpun væri gefin lausur taumurinn. Færri geta keypt vettlinga ef kólnar eða sólkrem ef hlýnar. Hvort sem loftslag Jarðar er enn og aftur að breytast af náttúrulegum orsökum, eða núna af mannavöldum, er aukaatriði. Ef mannkynið er gert fátækara er því gert erfiðara um vik að klæða sig eftir veðri eða byggja hús sín eftir aðstæðum.

Hin raunverulegu gróðurhúsaáhrif eru þau neikvæðu áhrif sem aðgerðir gegn orkunotkun mannkyns hafa á hagkerfi heimsins, og allar þær neikvæðu afleiðingar sem slíkt hefur í för með sér.

Geir Ágústsson kl. 20:42