« Eddan og aulahrollurinn | Aðalsíða | Hugo Chavéz, hinn spillti leiðtogi Venezúela »
27. nóvember 2006
Veitum fé til þarfs málefnis!
Kosningar eru í nánd og kosningaloforðin byrjuð að heyrast víða. Yfirleitt snúast þau um að ráðstafa tiltekinni upphæð fé skattgreiðenda í ákveðin brýn og nauðsynleg verkefni, svo sem fleiri brúar- og íþróttamannvirkjabyggingar á vegum hins opinbera eða hærri félagslegar bætur fyrir þá sem eiga börn eða hafa náð ákveðnum aldri. Sumir heimta einnig að ýmsar opinberar stofnanir, t.d. þær sem handstýra samkeppni á Íslandi, fái aukið fjármagn úr vösum skattgreiðenda enda ekki von til þess að slíkar stofnanir bjóði upp á þjónustu sem einhver er tilbúinn að greiða fyrir af fúsum og frjálsum vilja.
Gott og vel, stjórnmálamenn lofa að láta okkur fjármagna hin og þessi gæluverkefni sín í von um að uppskera fleiri atkvæði í kosningum. Við það er ekkert skrýtið, því miður. Það sem verra er að stjórnmálamenn segjast vera lofa fyrir hönd eða í nafni kjósenda. Þeir segjast vera hlusta á kröfur skjólstæðinga sinna og sjá til þess að þeim verði sinnt. Þetta er alrangt. Ef raunverulegur vilji kjósenda stendur til að byggja brú frá einum árbakka til annars þá er einfaldlega komið framboð sem markaðurinn sé um að sinna, séu kjósendurnir á annað borð tilbúnir að láta seðla fylgja orði. Hafi kjósendur engan áhuga á tiltekinni brú, eða hafi engan áhuga á að bakka upp kröfur sínar á eigin verðleikum, þá verður engin brú byggð.
Hið sama má segja öll önnur verkefni sem stjórnmálamenn lofa að leysa. Vill einhver styðja við barnafólk? Ef svo er þá er ríkinu í lófa lagt að afnema skatta sem renna til greiðslu barnabóta og leyfa þeim sem vilja að styðja við barnafólk. Ef stjórnmálamennirnir eru bara að gaspra, og í raun og veru hafi enginn áhuga á að styðja við barnafólk, þá mun það einfaldlega sýna sig. Að fullyrða fyrir hönd skattgreiðenda á meðan skattgreiðendur fá ekkert um málið að segja er hræsni og yfirgangur.
Hreinskilinn stjórnmálamaður segir hreint út að hann trúi ekki að neinn vilji styðja við barnafólk og þess vegna þurfi að fjármagna barnabætur með nauðungargjöldum - sköttum. Hann segir einnig að fólk sé of vitlaust til að tryggja sig gegn heilsubresti, of eigingjarnt til að styðja þá sem lenda í skakkaföllum í lífinu og of miklir óvitar til að ákveða hvar vegstæði eiga að liggja. Þess vegna þurfi opinbera embættismenn og stjórnmálamenn til að innheimta nauðungargjöld og ákveða hvað þarf gera til að aðstoða vitlausan múginn í lífsbaráttunni.
Geir Ágústsson kl. 16:56