« Samfélagsleg ábyrgð fyrirtækja | Aðalsíða | Eddan og aulahrollurinn »
23. nóvember 2006
Stjórnmálaflokkar slá um sig virki
Frjálshyggjufélagið sendi nýlega frá sér ályktun þar sem m.a. segir:
Hækkun á framlagi ríkisins til flokka veikir lýðræðið því það gefur sitjandi flokkum enn meira forskot á þá hópa fólks sem gætu viljað bjóða sig fram til þings.Þarna er frekar hóflega tekið til orða. Raunveruleikinn er töluvert svartari. Í fyrsta lagi er reynt að loka á fjárframlög frá einstaklingum og einkafyrirtækjum, sem oftar en ekki er stór tekjulind fyrir stjórnmálaflokka, og hlutfallslega stærri eftir því sem flokkurinn er minni. Í öðru lagi er núverandi stjórnmálaflokkum á Alþingi tryggðar enn hærri lögbundnar greiðslur úr vösum skattgreiðenda en nú er raunin.
Í raun vantar bara að reka seinasta naglann í líkkistu endurnýjunar í íslenskum stjórnmálum: Að banna stofnun og starfsemi nýrra stjórnmálaflokka. Slíkar eru hindranirnar sem nú er verið að leggja að í raun væri bara um formsatriði að ræða.
Aldraðir geta gleymt sínum hugmyndum um framboð. Frjálslyndi flokkurinn og Vinstri-grænir hefðu líklega aldrei orðið til sem flokkar undir því fyrirkomulagi sem nú á að koma á (formlega varð Samfylkingin ein til við sameiningu gömlu A-flokkana, Kvennalistans og Þjóðvaka á meðan Vinstri-grænir voru stofnaðir frá grunni). Pólitískt landslag girðir sig nú af. Ef t.d. litlir flokkar lenda í slæmum kosningum er næstum því hægt að gera ráð fyrir dauða þeirra í næstu kosningum (lítið úr frjálsum framlögum að hafa, lítið úr ríkissjóði að hafa með fá þingsæti, osfrv). Eftir standa stóru flokkarnir, sem í dag eru Samfylkingin og Sjálfstæðisflokkur, og þeir munu með tíð og tíma fylla meira og meira á Alþingi án þess að nokkuð verði við ráðið. Viljum við bandaríska tvíflokkakerfið á Íslandi?
Samráð olíufélaga um verð er a.m.k. háð því að enginn hefji samkeppnisrekstur við þau sem fyrir eru. Samráð stjórnmálamanna um að núverandi markaður stjórnmála verði girtur af með skattfé og lögbanni á frjáls framlög býr ekki við neina slíka ógn. Hin þverpólitíska sátt sem núna ríkir um þetta mál er ógeðfelld.
Geir Ágústsson kl. 14:12