« Þetta með kynferði og laun | Aðalsíða | Hin rétta stefna í innflytjendamálum »

6. nóvember 2006

Hverjir eru ekki rasistar?

Magnús Þór Hafsteinsson og félagar í „Frjálslynda“ flokknum standa í ströngu þessa dagana. Magnús sagði í Silfri Egils um helgina að hann vildi ekki banna neinum að koma til landsins, hann vildi bara „hafa stjórn á flæðinu“. Þetta hlýtur að vera einhver alveg ný tegund af stjórnun. Hvernig getur maður haft stjórn á því hverjir koma í partí til manns ef maður getur ekki og vill ekki banna neinum að koma inn? Þetta er náttúrulega rugl hjá Magnúsi Þór. Hann vill banna tilteknum útlendingum að koma hingað og á bara að viðurkenna það berum orðum.

Í þessari umræðu er líka athyglisvert að sumir pólitískir andstæðingar „frjálslyndra“ finnst þeir þess umkomnir að nota orðið rasismi um þær takmarkanir á komu útlendinga til landsins sem „frjálslyndir“ boða. Nú vita allir að ástæða þess að fyrirtæki ráða útlenska verkamenn í stórum stíl er sú að þeir eru ódýrari en margir Íslendingar. Löggjöf sem gerir það að skilyrði fyrir ráðningu að útlendingarnir séu með jafn há laun og þeir sem fyrir eru á vinnumarkaðnum hefur sömu áhrif og beint bann við komu þessara manna, þ.e., þeir munu ekki koma hingað í vinnu heldur halda áfram í sinni fátækt og atvinnuleysi í heimalandinu.

Frjálshyggjumenn virða rétt allra til að ferðast hvert sem er og semja um hvað sem er. Þar af leiðandi er Frjálshyggjufélagið eina stjórnmálaaflið á Íslandi sem ekki er hægt að klína á hugtakinu rasima.

Oddgeir Einarsson kl. 10:23