« Hverjir eru ekki rasistar? | Aðalsíða | Samfélagsleg ábyrgð fyrirtækja »
10. nóvember 2006
Hin rétta stefna í innflytjendamálum
Það athyglisverða við umræðuna um hömlur á ferðum útlendinga til landsins er að andstæðingar þeirra sem tala fyrir höftum virðast fæstir hlynntir frjálsri för af einhverri prinsippástæðu. Þannig kvarta fulltrúar annarra stjórnmálaflokka yfir því hvernig svokallaðir frjálslyndir „nálgast“ umræðuefnið og að þeir sýni ekki næga „yfirvegun“ og fleira í þeim dúr.
Að mínu mati er í fullkomnu lagi að ræða málin skýrt og skorinort og óþarfi fara á límingunum ef einhver segir „þetta fólk“, nefnir trúarbrögð, litarhátt eða þvíumlíkt.
Stjórnmálaflokkarnir falla allir í þá gryfju að taka undir með svokölluðum frjálslyndum að það þurfi að móta einhverja stefnu í innflytjendamálum. Ríkið á ekki að móta neina stefnu. Hver og einn getur mótað sína stefnu í innflytjendamálum án þess að þvinga aðra til að taka upp sömu stefnu. Þannig geta Magnús Þór og félagar t.d. sleppt því að tala við þá sem ekki tala þeirra tungumál og sleppt því að eiga viðskipti við fyrirtæki sem hafa útlendinga í vinnu hjá sér. Aðrir geta verslað við arabann á horninu og talað við hann ensku ef þá lystir.
Besta stefnan í innflytjendamálum er sú sama og í öllum öðrum málaflokkum, að allir fái að gera hvað sem þá lystir svo lengi sem þeir skaði ekki aðra.
Oddgeir Einarsson kl. 09:47