« Stjórnmálaflokkar slá um sig virki | Aðalsíða | Veitum fé til þarfs málefnis! »
23. nóvember 2006
Eddan og aulahrollurinn
Aulahrollur er tiltölulega nýlegt hugtak varðandi þá tilfinningu sem skapast við að horfa upp á aðra gera sig að fífli. Sjaldgæft er að upplifa slíkt þegar horft er á leikið efni en þó má sem gott dæmi taka hinn frábæra´sjónvarpsþátt The Office sem sýndur er á Skjá einum í kvöld.
Í gærkvöld varð ég fyrir því að horfa á endursýningu Edduverðlaunanan 2006 á RÚV. Við áhorfið fann ég fyrir óvæntum aulahrolli þegar í ljós kom að annar hver maður sem hleypt var að hljóðnemanum sá ástæðu til að klappa eða skála fyrir ríkisstjórninni fyrir að taka enn meiri peninga af skattborgurunum og afhenda þá kvikmyndaiðlnaðnum en áður hefur þekkst. Var þetta sérlega vandræðalegt. Sérstaklega þegar horft er til þess að undanfarin ár hefur þessi sama ráðstefna snúist um að agnúast út í stjórnvöld fyrir að láta skattgreiðendur í friði hvað þetta varðar.
Það allra vandræðalegasta af þessu öllu var síðan innlegg Magnúsar Scheving. Hann, þessi milljarðamaður, vildi að miklu meiri peningar færu í þennan geira afþreyingariðnaðarins. Ekki tilkynnti Magnús þó um að hann hefði ákveðið að leggja brot af sínum milljörðum í sjóð til að styrkja þetta áhugamál sitt. Magnús hvatti ríkisvaldið til að þjarma enn meira að launþegum þessa lands með opinberum styrkjum fjármögnuðum af þeim.
Og allir stóðu upp og klöppuðu...
Oddgeir Einarsson kl. 14:42