« Af hvalveiðum | Aðalsíða | Fæðingarorlofið jarðað »

20. október 2006

Til hægri frá vinstri

Ánægjuleg er sú þróun sem ég hef orðið var við síðustu misseri, sú þróun að jafnaðarmenn skuli tala fyrir því að atvinnulífið eigi að fá almennar leikreglur og að þannig geti það best spjarað sig. Jafnaðarmenn, Helgi Hjörvar og Andri Snær meðal annarra, segja að ríkið eigi ekki að standa í að reisa virkjanir eða hvetja með skattaívilnunum stórfyrirtæki til að koma til landsins með ver sín og smiðjur. Þvert á móti geti ríkið aldrei staðist einkaaðilum snúning í hugmyndaauðgi og hagkvæmni.

Helgi Hjörvar segir á vefsíðu sinni að Ísland eigi að fara í samkeppni við önnur lönd heims um lága og einfalda skatta. Það er afar góð hugmynd.

Vert er að hrósa því sem vel er gert, og því þykir mér tilhlýðilegt að hrósa jafnaðarmönnum fyrir þessa djúpristu speki, eins og þegar frjálshyggið fólk klappaði jafnaðarmönnum á bakið fyrir verðuga sókn þeirra að fyrirhuguðum höftum stjórnvalda á fjölmiðlun.

Gylfi Ólafsson kl. 14:49