« Að dæma sig sjálfur | Aðalsíða | Stækkun hítarinnar »

10. október 2006

Til hamingju Ísland!

Matarskattar á flestar tegundir matvæla og vörugjöld á margar tegundir þeirra lækka nú bráðum. Tekjuskattur ríkisins lækkar um áramótin. Sá afsláttur sem íslenskar launatekjur njóta frá skattheimtu hækkar. Íslendingar geta fagnað kosningavetri á annan hátt en oft áður; skattar lækka meira en venjulega og útgjöld ríkisins hækka líklega ekki meira en oft áður í aðdraganda Alþingiskosninga.

Menn eru þó ekki á eitt sáttir. Sumir halda að verslanir muni ekki láta skattalækkanir á matvælum endurspeglast (að fullu) í lægra matarverði. Aðrir telja að ríkið sé að verða af of miklum tekjum sem muni aftur koma niður á þeirri þjónustu sem ríkið viðheldur einokunaraðstöðu á og bannar samkeppni við. Ekki er þó ástæða til að hafa áhyggjur. Ef verslanir byrja að skila auknum hagnaði mun freistingin til að stofna til samkeppni við þær sem fyrir eru bara aukast sem aftur eykur aðhald og knýr á ráðdeild og til hagræðingar. Það að ríkið verði af skatttekjum er fagnaðarefni því hver sú króna sem skattgreiðendur fá að halda eftir mun finna sér annan og betri farveg en ráðuneyti hins íslenska ríkis.

Skattalækkunum ber að fagna í hvívetna. Það að þær komi sér vel fyrir neytendur er bónus en ekki forsenda þeirra.

Geir Ágústsson kl. 20:39