« Bág kjör verkafólks í Kína, eða hvað? | Aðalsíða | Af hvalveiðum »
17. október 2006
Sparar ríkið eða eyðir það bara minna?
Svo það sé alveg á hreinu: Ríkisvaldið (eða sveitarfélög) getur ekki sparað pening, ekki einu sinni með því að draga úr fjárveitingum til stofnana, verkefna og framkvæmda á vegum þess. Ríkið getur ekki sparað því ríkið á ekki krónu með gati. Ríkisvaldið getur hins vegar eytt meira eða minna af fé skattgreiðenda.
Þegar ríkið er sagt spara er það í raun bara að eyða minna af fé annarra en áður. Þegar ríkið skilar afgangi er það í raun bara að halda eftir meira af fé annarra en kostnaðurinn við rekstur þess krefst. Þegar ríkið veitir einhverju verkefni eða einhverri stofnun fé þá er það bara að taka völdin af þeim sem fjárins afla og beina í farveg sem er kannski og kannski ekki að skapi þeirra sem öfluðu þess.
Þegar ríkið lækkar skatta þá er það einfaldlega að gefa eftir lögboðna kröfu á sjálfsaflarfé annarra (þótt sumir haldi því fram að skattlagning sé almennt að skapi skattgreiðenda án þess þó að sýna það í verki með frjálsum framlögum í ríkissjóð).
Engin ný sannindi í þessu en áminningin er þörf.
Geir Ágústsson kl. 16:59