« Til hamingju Ísland! | Aðalsíða | Bág kjör verkafólks í Kína, eða hvað? »
11. október 2006
Stækkun hítarinnar
Kolbrún Baldursdóttir skrifar í dag grein í Fréttablaðið um glasafrjóvganir. Eins og gildir um svo margt á Íslandi þá eru glasafrjóvgunaraðgerðir að hluta til fjármagnaðar með því að skattleggja fyrst fólk, barnlaust eða barnmargt, og bjóða því svo upp á niðurgreiðslur. Ef viðkomandi par er svo heppið að hafa nægjanlegan forgang á biðlistum hins opinbera fæst niðurgreiðsla. Ef ekki fær viðkomandi ennþá að borga skattana sína til niðurgreiðsluþega án þess að fá krónu til baka og þaðan af síður umbeðna þjónustu.
Niðurgreiðslur og skattlagning sem kemur í veg fyrir að fólk hafi ráð á þjónustu hins opinbera hefur vel þekkt áhrif á samband framboðs og eftirspurnar, sem eru þau að boðið er upp á
..færri glasa/smásjárfrjóvganir en eftirspurn [er] eftir.Niðurgreiðslur hafa augljós áhrif: Þær auka eftirspurnina. Markaðsverð hefur augljós áhrif: Framboð og eftirspurn leita í jafnvægi.
Lausnin er vitaskuld augljós og lesendum þessa vefs vel þekkt, en hvað leggur Kolbrún til svo vonir og væntingar barnlausra para geti ræst? Hún talar um að finna
fjármagn til að styðja við bakið á þessum hópií samhengi sem er ekki hægt að skilja öðruvísi en svo að hún vilji að skattfé komi þarna við sögu í auknum mæli. Hvenær læra menn að það að henda fé í hít sem stækkar eftir því sem henni er gefið meira fé er ekki lausn á einu né neinu?
Geir Ágústsson kl. 18:28