« „Mér finnst að...“ | Aðalsíða | Til hamingju Ísland! »

5. október 2006

Að dæma sig sjálfur

Á frelsi.is stendur á einum stað:

Hugmyndin ein og sér er nægjanlega vitlaus til að dæma sig sjálf ...
Þarna kemur fram ein hvimleiðasta sjálfsupphafning dægurmálaumræðunnar - að hugmynd sé svo vitlaus (að mati einhvers) að hún geti á einhvern dularfullan hátt horfið sjálfkrafa.

Fyrir 100 árum lagði einhver til að konur fengju kosningarétt til jafns við karla. Sú hugmynd fékk ekki góðan hljómgrunn og átti líklega að dæma sjálfa sig úr leik. Sem betur fer hélt fólk samt áfram að berjast fyrir henni.

Fyrir 70 árum komst til valda í Þýskalandi flokkur sem hafði útrýmingu Gyðinga á stefnuskrá sinni (a.m.k. framkvæmdaskrá). Átti sú hugmynd að dæma sig sjálfa úr leik? Einhverjir, þ.á.m. þeir sem síðar fengu nafngiftina Bandamenn, héldu það eflaust og þögðu yfir henni. Sú þögn var óskynsamleg.

Raunveruleikinn er sá að margar slæmar hugmyndir eru nefndar og þótt einhverjum finnist þær eiga dæma sig sjálfar úr leik þá gera þær það ekki. Við sjáum dæmi um slæmar en jafnframt vinsælar hugmyndir allt í kringum okkur, þ.á.m. þá um launalögreglu ríkisins sem fyrrnefnd frelsi.is-grein fjallar um. Sú hugmynd hverfur hins vegar ekki af sjálfum sér. Hún skýtur rótum og verður á endanum að næstu Byggðastofnun, Samkeppnisstofnun, tónlistarhúsi eða hesthúsi.

Mín persónulegu meðmæli til þeirra sem ætla sér að skrifa nokkur orð og gagnrýna ríkisforsjá eða hugmyndir um útvíkkun hennar: Svara því hvers vegna hugmyndin er slæm, hverja hún skaðar, hversu lítill ávinningur örfárra verður af henni og hvaða slæmu langtímaafleiðingar hún mun hafa fyrir alla. Þannig drápu menn þjóðernissósíalisma, mismunun löggjafans á einstaklingum og kaupauðgisstefnu síðmiðalda (þótt allt sé reyndar á leið til baka eftir áratugi af þögn dæmir-sig-sjálf-fólks). Þannig og eingöngu þannig munu menn sigra rauðan femínisma, græningjana og siðapostulana. Því miður dæma slæmar hugmyndir sig ekki sjálfar úr leik. Því miður.

Geir Ágústsson kl. 19:01